Í gær greindi fréttastofa frá því að Miðflokkurinn hefði gengið til liðs við meirihlutann varðandi tillögu um breytingar á gatnamótum Bæjarháls og Höfðabakka. Umdeildar breytingar voru gerðar á gatnamótunum í fyrrasumar þegar tvö hægribeygjuframhjáhlaup voru fjarlægð og akreinaskipan breytt.
Tillagan snýr að því að lengja akreinar, sem er tillaga úr skýrslu verkfræðistofunnar Cowi um gatnamótin. Hins vegar vill meirihlutinn, þvert á það sem kemur fram í skýrslunni, bæta við einu framhjáhlaupi.
Brynhildur Bolladóttir, formaður Samtaka um bíllausan lífstíl, gagnrýnir það að bæta við framhjáhlaupinu þvert á ráðleggingar í skýrslunni.
„Það að koma vasanum inn aftur mun hafa mjög slæm áhrif á öryggi gangandi og hjólandi, en ekki síst á öryggi þeirra sem keyra. Aftanákeyrslur eru algengar í svona beygjuvösum. Þetta er öryggismál fyrir okkur öll,“ segir Brynhildur.
„Bílstjórarnir eru alltaf að líta í hina áttina þannig að þeir taka oftast ekki eftir öðrum. Maður þarf að ná augnsambandi við bílstjórana til að vita hvort það sé í lagi að maður fari yfir. Það sést líka á því að það er stöðugt verið að keyra aftan á bílana sjálfa. Fólk er ekki að fylgjast með því sem er að gerast beint fyrir framan það.“
Samtökin hafa sent umhverfis- og skipulagsráði bréf þar sem fulltrúar eru hvattir til þess að hætta við að bæta beygjunni við.
„Við viljum bara að farið sé eftir faglegu mati sem er sviðsmynd tvö í þessari skýrslu en ekki bæta við óþarfa beygjuvasa,“ segir Brynhildur.