Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, hefur árum saman barist gegn því að fólk sé dæmt eftir málfari. Í Facebook hópnum Málspjalli, sem hann stjórnar, eru athugasemdir við málfar einstaklinga og hópa beinlínis bannaðar. Eiríkur leit þó framhjá þessari reglu þegar hann setti læk við athugasemd þar sem gert er lítið úr íslenskukunnáttu stórs hluta áhangenda Miðflokksins.
Skot á íslenskukunnáttu Miðflokksmanna
Athugasemdin birtist undir færslu Roberto Luigi Pagani í Málspjallinu. Þar fjallar Pagani um þingsályktunartillögu Snorra Mássonar og annarra þingmanna Miðflokksins um hert skilyrði fyrir íslenskum ríkisborgararétti. Meðal annars er lagt til að umsækjendur standist íslenskupróf á hæfniþrepinu B2 eða C1 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.
Pagani gagnrýnir tillöguna og segir framboð á íslenskunámi ekki nægja til að mæta slíkum kröfum.

Sigrún Sól Ólafsdóttir skrifar kommentið:
„Ég held að margir Íslendingar myndu ekki ná C1 viðmiði.“
Vilhjálmur Þorsteinsson svarar henni með því að beina athugasemdinni sérstaklega að áhangendum Miðflokksins:
„… og ef dæma má af athugasemdaskrifum á Facebook þá gildir það allavega um stórt hlutfall áhangenda Miðflokksins.“
Á skjáskotum af umræðunni sést að Eiríkur er meðal þeirra sem settu læk við þessa tilteknu athugasemd.

Bannað samkvæmt reglum hópsins
Í lýsingu Málspjalls er tekið skýrt fram að hópurinn sé ætlaður fyrir uppbyggilega, jákvæða og málefnalega umræðu um íslenskt mál, málfræði og málfar.
Þar stendur jafnframt:
„Athugasemdir við málfar einstaklinga eða hópa eru ekki leyfðar en spurningar um málfarsleg atriði sem verða á vegi fólks eru vel þegnar.“

Bannið tekur því bæði til einstaklinga og hópa. Ekki er sjáanlegt að undantekning sé gerð fyrir áhangendur tiltekins stjórnmálaflokks.
Hvatti aðra til að yfirgefa hópinn vegna þessa
Í pistlinum „Málfarsfordómar eru óboðlegir“, sem birtist 27. september, fjallaði Eiríkur um umræðu í sama hópi þar sem rithöfundur hafði verið gagnrýndur fyrir að segja „þeim langar“ í viðtali. Sumir þátttakendur höfðu lýst því yfir að þeir vildu ekki lesa bók hans vegna þessa orðalags.
Eiríkur fordæmdi umræðuna og gagnrýndi að höfundurinn væri dæmdur eftir málfari.
„Slíkt á ekki að viðgangast og er í raun alveg óþolandi.“
Hann hvatti fólk sem hefði þessi viðhorf til að ganga úr hópnum.
Eiríkur hefur einnig skrifað um þetta árum saman. Í pistli frá 2020 lýsti hann því hvernig hann hefði breytt um afstöðu þegar hann áttaði sig á að tungumálið væri notað sem valdatæki til að halda fólki niðri og gera lítið úr því.