Nánari varnarsamvinna, norðurljósin, hernaðarleg uppbygging á Íslandi, umdeilt kort Trumps og fleira var til umræðu á blaðamannafundi utanríkisráðherra Íslands og Bandaríkjanna í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun.
Fyrr um morguninn hafði Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna setið fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra Íslands og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.
Að fundunum loknum héldu utanríkisráðherrarnir sameiginlegan blaðamannafund í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Þetta eru helstu atriðin sem fram komu þar:
- Rubio sagði að það yrði aldrei aukin viðvera eða uppbygging Bandaríkjahers hér á landi nema með samþykki íslenskra stjórnvalda. Ríkin væru áhugasöm um aukna samvinnu á ýmsum sviðum.
- Ráðherrarnir ítrekuðu hve mikilvæg samvinna ríkjanna væri í ljósi aukinnar ógnar á norðurslóðum.
- Ráðherrarnir ræddu nýlegan samning Bandaríkjanna við Danmörku og Grænland og sagði Þorgerður Katrín hann mikilvægan fyrir heimshlutann.
- Rubio og Þorgerður Katrín sögðust ekki hafa rætt um umdeilt landakort sem Trump birti í sumar sem sýndi Ísland og fleiri ríki þakin bandaríska fánanum. „Við erum ekki hér til að tala um færslur á samfélagsmiðlum,“ svaraði Rubio. Ráðherrarnir hafi hist til að ræða um framtíðina.
- Þorgerður Katrín sagði fundinn í morgun hafa verið góðan og til merkis um góð samskipti ríkjanna.
- Rubio lét vel af dvöl sinni á Íslandi og sagði náttúrufegurðina einstaka. Þá hafi hann séð norðurljós í gærkvöld.