DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
Nafnlaus pistill um Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttakonu Sýnar hefur verið fjarlægður af vef DV. Eigandinn er sagður nýta sér nafnlausa pistla í áróðursskyni til stuðnings ríkisstjórnarinnar. Frosti Logason og Bogi Ágústsson voru meðal þeirra sem tóku undir gagnrýnina á skrifin.
Nafnlaus skoðanapistill um Elísabetu Ingu Sigurðardóttur, fréttakonu hjá Sýn, hefur verið fjarlægður af vef DV. Pistillinn vakti hörð viðbrögð og sameinaði fjölmiðlafólk úr ólíkum áttum í gagnrýni á skrifin.
Þar á meðal voru Frosti Logason, ritstjóri Nútímans og Brotkastsins, Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttalesari hjá RÚV, og Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV. Fjölmargir aðrir fordæmdu skrifin í athugasemdum, meðal annars kjörnir fulltrúar.
Þeir sem ætla sér að lesa pistilinn nú fá skilaboðin: „Þú hefur ekki leyfi til að skoða þessa síðu.“
Gagnrýnd fyrir að ganga hart eftir svörum
Í pistlinum var Elísabet gagnrýnd fyrir að ganga hart á eftir svörum frá Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem hefur ekki viljað tjá sig frekar um samskipti sín við Guðmund Inga Kristinsson, eftir að sá síðarnefndi upplýsti um skilaboð sem hann fékk frá þáverandi aðstoðarmanni sínum.
Í þeim kom fram, að það væri vilji Valkyrjanna svokölluðu, að Guðmundur Ingi segði af …