Örfáir hnökrar uppgötvuðust eftir að símasfrí var innleitt í grunnskóla en að flestu leyti hefur innleiðingin gengið farssællega að sögn skólastjóra Garðaskóla. Nokkrir nemendur komu að máli við hann eftir innleiðingu símafrís og spurðu hvort hann gæti skipt skífuklukkunum út fyrir stafrænar klukkur því þeir kynnu ekki á þær fyrrnefndu.
Skólastjóri Garðaskóla kallar þetta krúttlegt vandamál, hefur ekki miklar áhyggjur af því og kveðst raunar sannfærður um að fullorðnu fólki væri nokkur vandi á höndum ef snjallsímar þess yrðu teknir af því á vinnutíma því mörg af þeim tækjum sem við notum til að auðvelda okkur lífið eru innbyggð í snjallsímana; þeir gera okkur kleift að rata, borga og reikna, svo fátt eitt sé nefnt.
Kastljós heimsótti Garðaskóla á dögunum og ræddi við Jóhann Skagfjörð Magnússon, skólastjóra í Garðaskóla, og spurði hann út í hvernig reynslan væri af símafríi í skólanum enn sem komið væri.
„Svona heilt yfir bara mjög góð. Einhverjir hafa lýst því þannig að krakkarnir hafi verið leystir úr álögum, sem er skemmtilegt, og kannski er helsti munurinn sá að það eru rosalega mikil læti á göngunum í frímínútum, sem er gott.“
Það eru meiri læti núna en fyrir bannið?
„Miklu meiri læti! Ég heyri þetta inni á skrifstofunni minni. Þau eru farin að spila tónlist með tilheyrandi látum og ærslagangi. Ég fagna látunum! Þetta er skóli, sko. Það á að vera líf í honum. Ef það er ekki líf í skólum þá erum við að gera eitthvað rangt.“
Það voru ekki aðeins líflegheitin og skortur á skífuklukkukunnáttu sem stjórnendur skólans uppgötvuðu við innleiðingu símafrís því foreldrar barnanna áttu ekki síður erfitt með að aðlagast símafríi barnanna.
„Í þau skipti sem við þurfum að taka síma af nemendum þá myndi ég segja að þetta væri í 80% tilvika að krakkarnir séu í samskiptum, annaðhvort símtölum eða skilaboðum, við foreldra sína. Foreldrar eru auðvitað vanir að hafa bara þennan óhefta aðgang að börnunum sínum á skólatíma, minna þau á lækni, minna þau á æfingu eða bara spjalla við þau. Og þetta er auðvitað bara munur fyrir alla, bæði krakkana og foreldrana.“
Þannig að þetta er eins konar foreldrafrí líka?
„Þetta er það líka og ég held að þetta sé í rauninni bara mjög gott, klippa aðeins á naflastrenginn.“