Eftirvænting og spenntar taugar einkenndu gærdaginn hjá Hafdísi.
„Fiðrildin eru að fara af stað og nú veit ég ekkert hvernig ég á að vera,“ segir Guðrún Hafdís Karlsdóttir þegar hún beið eftir að hitta Ambiku, sem hún styrkti í tæpa tvo áratugi, frá 1993 til 2012. Þá bjó Ambika í SOS barnaþorpi á Indlandi.
„Ég bjóst aldrei við að sjá hana,“ segir Guðrún Hafdís sem er alltaf kölluð Hafdís.
Miklir fagnaðarfundir
Hafdís og Ambika fallast í faðma þegar þær hittast á skrifstofu SOS barnaþorpa í Kópavogi.
„Ég er svo hamingjusöm að fá að hitta hana,“ segir Ambika Sharma. „Ég bjóst ekki við að fá að hitta hana í persónu og knúsa hana,“ bætir hún við.
Þessi stund á sér langan aðdraganda. Í fyrrasumar rakst Ambika á bréfin frá Hafdísi í skrifborðinu sínu og ákvað að reyna að finna hana.
Persónuverndarreglur flæktu málið og að endingu var ákveðið að auglýsa eftir Hafdísi á Facebook sem bar skjótan árangur.
„Þetta voru ótal tilfinningar sem ruddust upp allar í einu, sko. Gamlar minningar, gamlar myndir af henni sem barni,“ segir Hafdís þegar hún er spurð hvernig henni leið þegar hún vissi að Ambika væri að leita að henni.
Og í dag, um það bil einu og hálfu ári síðar, hittast þær – rúmlega 30 árum eftir að þær skrifuðust á fyrst. Þær eyddu deginum saman og skoðuðu borgina.
„Þú ert tengd manneskjunni sem skrifaði til þín, allur stuðningurinn skipti máli, og öll póstkortin og bréfin,“ segir Ambika.
„Ég fer með póstkortin [frá Hafdísi] hvert sem ég fer. Ef ég fer á farfuglaheimili, eftir hjónaband, ég flyt ég með þau með mér hvert sem ég fer,“ bætir hún við.
Finnst þér eins og þú eigir smá í henni?
„Já. Mér finnst það,“ svarar Hafdís óhikað.
„Mér líður rosalega vel að hafa allavega gert það fyrir eitt barn, að koma því áfram veginn. Til þess var nú leikurinn gerður. En ég bjóst ekki við því að við yrðum svona nánar í gegnum bréfin,“ segir Hafdís að lokum.