Veggjalús hefur gert vart við sig í tugum hótelherbergja hér á landi það sem af er ári. Alls hafa 75 tilfelli verið skráð hjá finnska fyrirtækinu Valpas, sem þjónustar nú 53 íslensk hótel.Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag og rætt við Martiom Gois, forstjóra og einn stofnenda Valpas. Miðað við tölur fyrirtækisins hefur veggjalús borist með gestum inn á hótel sem nota kerfið að jafnaði á um þriggja daga fresti.
Veggjalús berst inn á íslensk hótel á þriggja daga fresti