Í öðrum þættinum var sýnt frá atviki þar sem eineygður próflaus ökumaður reyndi að flýja af vettvangi. Hann var stöðvaður þar sem bifreiðin var eineygð en svo kom í ljós að ökumaðurinn sjálfur var það líka.
Margir af þekktustu leikurum landsins koma við sögu í fjölbreyttum og ófyrirsjáanlegum útköllum í þáttunum. Á meðal leikara eru Aron Már Ólafsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jörundur Ragnarsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Leikstjórn er í höndum Ólafs Ásgeirssonar og framleiðendur eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.
Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti en þeir koma alltaf inn á Sýn+ á föstudagskvöldum og eru sýndir á Sýn+ rásinni á myndlyklum á föstudagskvöldum.