Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Einbýlishúsið að Háahlíð 16 í Reykjavík er nú til sölu, en um er að ræða stórt og veglegt hús á þremur hæðum með meðal annars sundlaug, spa aðstöðu, líkamsrækt og aukaíbúð. Óskað er eftir tilboði í eignina, sem hefur verið á sölu um nokkurt skeið.
Húsið var upphaflega byggt árið 1955 og er skráð 379,2 fermetrar samkvæmt HMS. Raunveruleg stærð þess er hins vegar sögð vera um 530 fermetrar, en húsið var stækkað árið 1990. Það var síðan endurinnréttað á vandaðan hátt fyrir um 17 árum.
Á miðhæð hússins eru rúmgóð alrými með stofum, borðstofu og eldhúsi auk gestasnyrtingar og forstofu. Þar er einnig tvöfaldur bílskúr.
Á efri hæðinni er stór hjónasvíta, annað svefnherbergi, opið sjónvarpshol og þvottahús. Á neðstu hæðinni eru síðan tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslur og þvottahús. Þar er jafnframt fullbúin tveggja til þriggja herbergja aukaíbúð.
Það sem helst vekur athygli er sérstök spa aðstaða á neðri hæðinni þar sem finna má sundlaug og líkamsræktaraðstöðu. Innra skipulag eignarinnar býður að sögn upp á fjölbreytta möguleika og hægt er að laga nýtingu hennar að þörfum nýrra eigenda.
Mikið hefur verið lagt í innréttingar hússins. Innréttingar eru sérsmíðaðar, gólfefni vönduð og lýsing vandlega útfærð. Þá er koparþak á húsinu.
Lóðin er gróin og vel frágengin með góðum veröndum. Bílaplan er rúmgott og upphitað. Eignin stendur á sérstökum útsýnisstað í Reykjavík og er henni lýst sem einbýlishúsi í algjörum sérflokki.