Tugir þúsunda franskra framhaldsskólanema mótmæltu slæmum aðstæðum til náms í fjölda borga og bæja. Yfirfvöld segja 86 þúsund mótmæla utan höfuðborgarinnar og í París var viðbúið að 20 til 40 þúsund nemendur myndu bætast mótmælin sem hófust þar í hádeginu.
Mótmælin hafa stigmagnast síðustu daga og dag var fjórðungur framhaldsskóla í Frakklandi lokaður eða óstarfhæfur vegna mótmælanna.
Fréttastofa AFP hefur eftir nemanda í úthverfi Parísar að þeir krefjist betri aðstæðna til náms. Hann sagði að stundum væri ekki nóg af borðum og stólum í skólastofunni, að suma daga ef þeir mættu seint í mötuneytið væri ekkert í boði nema brauðsneið og vatn og að á klósettunum væru engar hurðir, enginn klósettpappír og engin sápa.
Kennari sem AFP ræddi við sagði að hitabylgjur sumarsins hefðu kynt undir óánægju nemenda og kennara því húsnæðið sé ekki hentugt í miklum hita.
Komið hefur til átaka milli mótmælenda og lögreglu, sem hefur meðal annars beitt táragasi, vatnsslöngum og handsprengjum til að reyna að hafa hemil á mótmælendum. Fimm þúsund hafa verið handtekin og á þriðja hundrað hafa slasast.
Í gær missti fimmtán ára gamall piltur höndina þegar lögregla kastaði handsprengju í átt að mótmælendum. Samkvæmt fjölmiðlum ytra er málið í rannsókn og enn liggur ekki fyrir hvort sprengjan hafi hæft drenginn eða hvort hann hafi tekið hana upp.
Frönsk mannréttindasamtök hafa lýst áhyggjum af því sem þau segja óhóflega valdbeitingu lögreglu gegn mótmælendum.