Hörður Arnarson lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í síðustu viku vegna ágreinings um stjórnarhætti. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009. Aðstoðarforstjórinn tekur tímabundið við þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.
Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar sagði við fréttastofu að Hörður hefði stýrt fyrirtækinu vel í 17 ár en að eðlilega væri fólk ekki alltaf sammála. Rýnt var í þessi tíðindi, stöðu Landsvirkjunar og veru Harðar í forstjórastóli í Vikulokunum, þar sem rætt var við Andrés Jónsson, almannatengil og stjórnendaráðgjafa, og Guðmund Hálfdanarson sagnfræðing.
„Hann lætur ummæli falla á lokuðum starfsmannafundi um þennan skoðanamun. Hugsanlega hefði hann átt bara að hætta og fá það uppklapp sem hann á skilið, vegna þess að hann hefur verið mjög farsæll og mjög mikilvægur stjórnandi þessa fyrirtækis í langan tíma,“ segir Andrés. „Mín skoðun er sú að 17 ár séu nú fulllangur tími í svona embætti,“ bætir hann við.
Aðspurður hvort nægilegt gagnsæi hafi verið eftir ágreininginn segir Andrés að því sé bæði hægt að svara játandi og neitandi. „Þetta er þannig fyrirtæki að það þarf umræðu um það. Stundum finnst mér umræðan um það hafa verið of lítil síðasta ár. Það var auðvitað mjög umdeilt á tímum Kárahnjúkavirkjunar. Eitt af því sem Hörður gerði vel var að hann skapaði mikið traust í garð fyrirtækisins og síns sjálfs,“ segir Andrés.
Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur tekur undir með Andrési. „Það gustaði ansi mikið um fyrirtækið á tímabili, þá í lok síðustu aldar og upphafi þessarar þegar Kárahnjúkavirkjun var í sviðsljósinu. Þá minnkaði mikið traustið til fyrirtækisins og Herði hefur tekist að byggja það upp aftur. Um leið sjáum við að það hefur ekki verið virkjað mikið síðan,“ segir hann.
Val á næsta forstjóra gæti komið á óvart
Andrés birti fréttabréf þar sem hann rýndi í stöðuna sem upp er komin og nefndi sex einstaklinga sem gætu komið til greina sem næsti forstjóri Landsvirkjunar. Það voru Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun, Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, forstjóri Avalanche Studios, Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, Ásta Fjeldsted, forstjóri Festis, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku.
„Fólki sem ég heyrði í fannst þetta allt fólk með ágætisbakgrunn í þetta. En ég held að mögulega sé næsti forstjóri ekki á þessum lista og muni koma einhverjum á óvart,“ segir Andrés. „Ég held að þetta þurfi að vera einstaklingur sem er tilbúinn að vera smá umdeildur þegar það á við og verði alltaf að einhverju leyti umdeildur og Hörður var það.“
„Það þarf aðila með sterk bein en líka bara faglegan stjórnanda eins og ég held að við séum að læra í meira mæli. Stjórnun er bara fag og stjórnandi hefur ákveðið hlutverk og ákveðinn líftíma og mismunandi stjórnendur henta fyrir mismunandi tímabil. Ekki óumdeildur en einhver sem getur byggt upp traust bæði innandyra og utandyra,“ bætir Andrés við.
Guðmundur telur einnig mikilvægt að nýr stjórnandi hafi vit á stjórnmálum. „Um leið og ég er ekki viss um að það sé rétt að velja stjórnmálamann þá þurfa þeir sem sitja í þessu starfi að hafa stjórnmálavit. Þetta er pólitískt fyrirtæki. Þetta er ríkisfyrirtæki sem er að vinna í gríðarlega pólitískum viðkvæmum geira,“ segir hann.
„Sá sem situr á þessum stóli – og ég held að Hörður hafi almennt staðið sig vel í því – þarf að tala við samfélagið og skynja hvernig vindarnir blása því virkjanir verða alltaf umdeildar, hafa verið það, verða það og eiga að vera það vegna þess að það er verið að breyta náttúru landsins og ásýnd landsins,“ segir Guðmundur.