Íhaldsflokkurinn vill koma upp loftvarnakerfi til að verja landið gegn dróna- og eldflaugaárásum. Flokkurinn hefur gefið kerfinu heitið Britannia Dome eða Bretlandshvelfinguna og líkti því í fréttatilkynningu við járnhvelfinguna sem Ísraelar hafa reist til að verjast eldflaugaárásum.
Loftvarnakerfið var meðal þess sem flokkurinn kynnti á flokksþingi sínu í dag.
James Cartlidge, skuggaráðherra varnarmála, sagði að áform þeirra gengju út á að samræma loftvarnir og kaupa búnað til að verjast dróna- og eldflaugaárásum.
Cartlidgle sagði að Bretar væru þegar með góð loftvarnakerfi en að það þyrfti meira af þeim. Hann lagði til að Bretar keyptu eldflaugar og annan búnað til að skjóta niður dróna og eldflaugar fyrir tíu milljarða punda. Hann sagði að hægt væri að byggja upp kerfið á fimm árum.
Sky News ræddi við Arun Dawson, rannsakanda hjá Freeman flug- og geimrannsóknamiðstöðinni við King's College í London. Hann sagði að þær fjárhæðir sem Íhaldsflokkurinn nefndi væru tiltölulega hógværar miðað við hvað sérfræðingar telji nauðsynlegt til að tryggja varnir Bretlands.
Dawson vísaði til mats Sir Richard Barrons hershöfðingja sem er einn höfunda varnarmálaskýrslu sem tekin var saman á síðasta ári. Barron taldi að það kostaði minnst 80 milljarða punda að verja viðkvæmustu og mikilvægustu staðina á Bretlandseyjum.
„Ef við lítum á það sem Bretland hefur á þessari stundu, sérstaklega til að verjast eldflaugum þar sem ég myndi segja að við stöndum verst að vígi, þá höfum við í raun bara einn tundurspilli til að verja allt Bretland,“ sagði Dawson.