Rithöfundasamband Íslands lýsir stuðningi við frumvarp menningarráðherra um að þyngja refsingar fyrir ólöglega dreifingu á sjónvarpsefni. Sambandið vill að það nái líka yfir brot á höfundarrétti rithöfunda hvers efni hafi verið notað til að þjálfa gervigreind og með margvíslegum hætti í skólastarfi.
Þetta kemur fram í umsögn Rithöfundasambands Íslands við frumvarp Loga Einarssonar. Samkvæmt frumvarpinu mætti refsa fyrir ólögmæta dreifingu á höfundarréttarvörðu sjónvarpsefni með sektum eða allt að sex ára fangelsi.
Í umsögn Rithöfundasambandsins segir að íslenskir rithöfundar hafi á síðustu árum orðið fórnarlömb stórfelldra höfundarréttarbrota þar sem verk þeirra hafi verið notuð til að þjálfa gervigreind.
„Stór tæknifyrirtæki hafa orðið uppvís af því að stela milljónum bóka á stafrænu formi af sjóræningjasíðum til að þjálfa gervigreind, m.a. verkum íslenskra höfunda.“
Rithöfundasambandið segir að íslensk stjórnvöld hafi ekkert gert til að sporna gegn þessum brotum.
„Þá eru daglega framin höfundarréttarbrot í íslensku skólastarfi þar sem kennarar hlaða verkum íslenskra höfunda inn í gervigreindartól til að búa til verkefni fyrir nemendur eða jafnvel þýða verkin á önnur tungumál fyrir nemendur af erlendum uppruna.“