Rubio fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Safnahúsinu við Hverfisgötu í morgun.
Á blaðamannafundi sem haldinn var í kjölfarið lagði Rubio áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands en hann sagði legu Íslands skipta miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum. Jafnframt sagði hann að fjöldi tækifæra væru fyrir hendi til frekara samstarfs á sviði öryggis- og efnahagsmála.
Að blaðamannafundinum loknum hélt Rubio ásamt fylgdarliði sínu í bandaríska sendiráðið við Engjateig.
Þaðan var haldið á Keflavíkurflugvöll þar sem Þorgerður Katrín tók á móti honum og kvöddust þau þar áður en Rubio hélt upp í flugvél sem tók á loft frá Keflavík upp úr hádegi. Rubio flýgur nú til Aþenu en Evrópuför hans lýkur með fundahöldum í Lissabon, höfuðborg Portúgals.