„Börn eru ekki bara litlir fullorðnir. Við getum ekki byrjað að afreksþjálfa börnin 10, 11, 12 ára. Það beinlínis á að vera okkar keppikefli að viðhalda leikgleðinni og draga úr pressu á börnin. Þetta á að vera gaman.“
Þetta segir Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Hann var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í morgun.
Dr. Sveinn Þorgeirsson, aðjunkt við íþróttafræðideild HR, sagði við fréttastofu á dögunum að áherslan á árangur og keppni í íþróttaiðkun barna yngri en 12 ára væri stórt spurningamerki.
Hann sagði að mikið æfingaálag, framboð af einkaþjálfun fyrir börn og mótahald væri umhugsunarvert.
Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, sagði að þróunin væri orðin þannig að horft væri til þess að búa til framtíðarafreksfólk frekar en umhverfi þar sem börn fá að vaxa og dafna.
Willum segir að þetta sé mikilvægt innlegg í umræðuna. „Við megum aldrei tapa sjónum af því að framan af ævinni á þetta að vera leikur. Gleðin á að vera í fyrirrúmi.“
Hann segir að kjarninn í afreksstefnu Íþrótta- og Ólympíusambandsins sé forvarnar- og lýðheilsustarf. „Ef við gerum það vel þá fáum við fleira afreksfólk.“
Willum segir að það sé mikilvægt að treysta á foreldrana og draga úr pressu á börn. „Leyfa þeim að prófa sem flestar íþróttir. Það er kjarninn í stefnunni.“
Hann segir forvarnir virka best þegar börn fá að prófa sem flest til að finna sína syllu. Afrekið fylgi síðan.
Í Noregi bendir hann á að settar hafi verið reglur þannig að íþróttafélög missi styrki ef þau afreksvæði starf sitt um of.
„Við höfum ekki gengið svo langt en við erum með stefnuna alveg eins, segi ég,“ segir Willum.