Umhverfis- og orkustofnun telur litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu og telur ekki vera forsendur til að auglýsa eftir umsækjendum um leyfi til olíuleitar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar (UOS) um olíuleit á Drekasvæðinu.
„Allar niðurstöður og öll sú rýni sem við höfum lagt í, þar með talið með kollegum okkar hjá ÍSOR, eru að benda í sömu átt – að þarna séu litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni,“ segir Gestur Pétursson forstjóri UOS.
„Þarna erum við með áratuga rannsóknir sem eru meira og minna samhljóma um þá niðurstöðu.“
Óvissa um hvað leynist undir jarðlögunum
Í skýrslunni segir að mikil óvissa sé um tilvist, gerð og ástand hugsanlegra jarðlaga sem gætu staðið undir myndun, flutningi og varðveislu kolvetnis. Íslenskar orkurannsóknir, eða ÍSOR, segja jarðsögu Jan Mayen-svæðisins, og Drekasvæðisins sérstaklega, vera mun flóknari en áður var talið.
Aðstæður takmarki mjög notkun þeirra rannsóknaraðferða sem notaðar eru við olíuleit.
„Jarðlögin sem búið er að rannsaka, þau í raun og veru sýna ekki það sem er undir þeim. Til þess að greina þau jarðlög enn frekar þarf að bora sérstakar rannsóknarholur,“ segir Gestur.
UOS telur hverfandi líkur á að kolvetni finnist á Drekasvæðinu í vinnanlegu magni. Hins vegar þurfi að hafa í huga að ekki hafi verið sýnt fram á að ekkert kolvetni sé að finna á Drekasvæðinu eða Jan Mayen-hryggnum í heild.
Olíuleit gæti verið afar kostnaðarsöm því eina leiðin til að eyða óvissunni er að bora rannsóknarholu sem nær niður í jarðlög sem talin eru vera frá uppbroti og myndun Atlantshafsins.
„Þarna er um gríðarlega fjármuni að ræða og þessi skýrsla sem við erum að gefa hér út mun hjálpa til við áreiðanleikakönnun, mat á þeirri áhættu fyrir þá sem vilja fara út í það,“ segir Gestur.
Miðað við mat á þykkt yngri jarðlaga þyrfti að minnsta kosti að gera ráð fyrir þriggja til sex kílómetra djúpri borholu. UOS telur vænlegast, ef ráðist yrði í slíkt, að holan yrði boruð á nyrðri hluta Drekasvæðisins, eða í lögsögu Noregs á Jan Mayen-hrygg.