Ummælin lét Trump falla á fundi með stuðningsmönnum sínum í Nebraska í gærkvöldi. Þar sagði hann meðal annars að hátt olíuverð væri lítið gjald fyrir að tryggja öryggi heimsbyggðarinnar og Bandaríkjanna með stríðsrekstrinum í Íran.
„Þeir gætu tekið út borg. Leyfið þeim að taka út Los Angeles. Leyfið þeim að taka út San Diego,“ sagði forsetinn og uppskar lófatak aðdáenda sinna.
Trump: "With the war, it's just artificial. It's a little bit high. It's a small price to pay ... let them take out Los Angeles, let them take out San Diego. This is a very small price to pay."
— Aaron Rupar (@atrupar.com) October 5, 2026 at 11:44 PM
[image or embed]
Bæði Los Angeles og San Diego er stýrt af demókrötum og ríkið sjálft sömuleiðis. Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, fordæmdi ummæli forseta landsins í samfélagsmiðlafærslu.
„Hann er sturlaður og hættulegur,“ sagði Newsom.
Það gæti ekki talist eðlilegt að forseti landsins hvetti til árása á tvær af fjölmennustu borgum eigin lands þar sem rúmlega tíu milljónir manna búa.
Trump hefur beitt sér á ýmsan hátt gegn ríkjum sem greiddu honum ekki atkvæði í forsetakosningunum árið 2024, meðal annars með því að meina þeim um stuðning alríkisstjórnarinnar eftir náttúruhamfarir. Þá sendi hann þjóðvarðliðið til Kaliforníu til þess að framfylgja innflytjendastefnu sinni í fyrra.