Formenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Miðflokksins vilja að umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði formlega ógild.
Í þingsályktunartillögu formannanna er lagt til að Alþingi feli ríkisstjórninni að tilkynna Evrópusambandinu þessa afstöðu með skýrum og ótvíræðum hætti og afla í kjölfarið skriflegrar staðfestingar frá sambandinu á stöðu Íslands.
Með þessu vilja þau fylgja eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn, þar sem niðurstaðan var að Ísland ætti ekki að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. „Mikilvægt er að ríkisstjórnin virði vilja þjóðarinnar eins og hann birtist í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu, tryggi að Ísland verði ekki lengur umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu í augum sambandsins,“ segir í greinagerð með tillögunni.
Flutningsmenn tilögunnar eru Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, en formaður Framsóknar, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, á ekki sæti á þingi.
Í greinargerðinni kemur fram að flutningsmenn telji að umsókn Íslands hafi þegar verið afturkölluð með bréfum þáverandi utanríkisráðherra og forsætisráðherra til Evrópusambandsins árið 2015. Núverandi ríkisstjórn líti hins vegar svo á að umsóknin hafi ekki verið formlega afturkölluð og sé því enn í gildi. Taka verði af allan vafa um stöðu Íslands.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna tóku skýrt fram, eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar lá fyrir, að ekki verði farið í viðræður við Evrópusambandið á þessu kjörtímabili. Ekki sé þó ástæða til að draga umsóknina formlega til baka.