Kærunefnd húsamála hefur hafnað kröfu konu um hærri endurgreiðslu, en hún hafði þegar fengið, á leigu fyrir íbúð sem varð altjón í vegna bruna. Konan flutti út úr íbúðinni um nokkurra mánaða skeið en vildi meina að íbúðin hefði enn verið óíbúðarhæf þegar hún flutti aftur inn. Nefndin tók ekki undir það.Það kemur ekki fram hvar á landinu íbúðin er og hver leigusali konunnar er en af samhengi úrskurðar nefndarinnar að ráða virðist leigusalinn vera sveitarfélag.
Fær ekki frekari endurgreiðslu á leigu vegna íbúðar sem kviknaði í