Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að hún og aðrir viðsemjendur frá LÍV og Fagfélögunum vonist eftir frekara samtali við Samtök atvinnulífsins í Borgartúni hjá ríkissáttasemjara.
Stéttarfélögin þrjú hafi fundað með Samtökum atvinnulífsins í morgun. Þá hafi hugmyndir verið kynntar fyrir samtökunum en ekki hafi enn fengist svör við þeim.
Naumur tími er til stefnu í kjaraviðræðum en stéttarfélög hafa fram til klukkan 16:00 á fimmtudag til að ákveða hvort segja eigi upp kjarasamningum eða ekki.
„Við teljum að þetta sé dags og nætur samtal sem á að vera í gangi samfleytt þangað til yfir lýkur,“ segir Halla.
Engin ákvörðun um frekara samtal verið tekin
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvort funda eigi frekar með VR, LÍV og fagfélögunum í dag. Fundað hafi verið með þeim í morgun ásamt öðrum stéttarfélögum. Vissulega verði áfram hægt að eiga samtöl svo lengi sem eitthvað sé að moða úr.
„Það mun ekki standa á okkur að vera fram eftir,“ segir Bjarni.
Samningaviðræðum sniðinn þröngur stakkur
Bjarni telur þó að áætlanir ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár sníði kjaraviðræðum ansi þröngan stakk. Hann nefnir sem dæmi að ríkisstjórnin hafi ekki ákveðið að falla frá hækkunum á kílómetragjaldinu á næsta ári þrátt fyrir að takmarka eigi margar gjaldskrárhækkanir við 2,5%. Einnig hafi verið veittir afslættir 40% á kílómetragjaldi fyrir eftirvagna árið 2026 en það verði 20% árið 2027.
Þetta telur Bjarni að verði hreinlega til þess að hækka verðbólgu á næsta ári og mikið af þeim samtölum sem Samtök atvinnulífsins eigi við stéttarfélög taki mið af þeirri verðbólgu sem verði á næsta ári.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði á föstudag að það væri ekki hlutverk ríkisstjórnarinnar að leysa deilumál aðila á vinnumarkaði. Ríkisstjórnin sé þó tilbúin að liðka fyrir því með öllum ráðum svo fremi sem áfram verði hægt að skila hallalausum fjárlögum.