Í tilkynningu þess efnis á vef lögreglunnar segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir á þessu stigi rannsóknarinnar leiki grunur á að fleiri en einn hafi ráðist á brotaþola og að barefli hafi verið beitt. Brotaþoli hafi sjálfur leitað á sjúkrahús og fengið þar aðhlynningu.
Húsleit hafi verið framkvæmdá fleiri en einum stað í tengslum við málið. Tveir sakborningar hafi verið handteknir og færðir til skýrslutöku en sleppt að skýrslutökum loknum. Fleiri séu grunaðir um aðild að málinu og þeirra sé leitað.
Brotaþoli er á þrítugsaldri en þeir sem grunaðir eru um aðild að árásinni séu á þrítugs, fertugs og fimmtugsaldri.
Rannsókn málsins standi yfir og ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu