Erna Bjarnadóttir skrifar:
Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið hafa birst nokkrar greinar sem fjalla um niðurstöðuna. Þar þarf að greina á milli þess sem kjósendur ákváðu, þess sem gögn sýna og túlkunar höfundanna. Að vera ósammála niðurstöðunni er eitt. Að halda því fram að misskilningur, tilfinningar eða blekkingar hafi ráðið niðurstöðunni er annað.
Hér verður litið á tvær slíkar greinar. Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fjallaði um atkvæðagreiðsluna hjá TEPSA 22. september og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í Bretlandi, skrifaði hjá European Council on Foreign Relations 4. september. Báðir höfundar lýsa málflutningi í kosningabaráttunni og fullyrða síðan um áhrif hans á kjósendur.
Greinarnar eru skrifaðar á ensku fyrir erlenda lesendur á vettvangi utan íslenskrar fjölmiðlaumræðu. Þar geta túlkanir á afstöðu íslenskra kjósenda birst án þess að verða tilefni andsvara hér heima.
Kjósendur máttu meta afleiðingarnar
Í TEPSA-greininni lýsir Conrad því sem fyrsta stóra árangri nei-hliðarinnar að gera atkvæðagreiðsluna að umræðu um aðild sjálfa. Sú framsetning hafi mótað umræðuna og torveldað já-hliðinni að koma boðskapnum „já til að sjá“ til skila. Hann tengir hana einnig við stjórnmálaumræðu þar sem staðreyndir víkja fyrir tilfinningum og pólitískum boðskap – það sem á ensku er kallað „post-truth politics“.
Til að styðja þessa skýringu þarf gögn um hvernig kjósendur skildu spurninguna, tóku við skilaboðum og mynduðu afstöðu sína. Að ákveðin rök hafi verið áberandi sýnir ekki eitt og sér að þau hafi ráðið afstöðu kjósenda.
Kjósandi getur skilið fullkomlega að samþykki fyrir viðræðum jafngildi ekki samþykki fyrir inngöngu og samt hafnað því að hefja þær. Hann getur metið tilgang viðræðnanna, líklega niðurstöðu og afleiðingar þess að fara af stað. Umræða um aðild sýnir því ekki ein og sér að spurningin hafi verið rangtúlkuð.
Það var málefnalegt að ræða hvort Ísland ætti að stefna að aðild að ESB og hvort ásættanleg niðurstaða væri líkleg. Sá sem telur fyrirliggjandi upplýsingar nægja til að hafna þeirri stefnu þarf ekki að hafa misskilið viðfangsefnið.
„Já til að sjá“ var líka pólitísk innrömmun sem lagði áherslu á upplýsingagildi viðræðna, fremur en kostnað, aðlögun og skuldbindingar á leiðinni. Fræðileg greining getur ekki tekið forsendur annarrar fylkingarinnar sem viðmið um réttan skilning.
Conrad nefnir rök Carls Baudenbachers um að viðræðurnar geti skapað skuldbindingar, væntingar og þrýsting sem geri erfiðara og kostnaðarsamara að hætta við síðar.* Í þeim felst ekki að samþykki fyrir viðræðum jafngildi ákvörðun um aðild. Rökin snúast hins vegar um að viðræðurnar geti breytt aðstæðum þegar næsta ákvörðun er tekin.
Conrad hafði fyrir kosninguna afgreitt rök Baudenbachers sem „vitleysu“. En að þjóðin geti hafnað aðild síðar hrekur ekki að viðræðurnar geti gert erfiðara og kostnaðarsamara að hætta við. Conrad bendir á að hægt sé að snúa við, en svarar ekki spurningunni um hvað það gæti kostað. Hann vísaði einnig til þess að Norðmenn hefðu hafnað aðild að loknum viðræðum árið 1994, án þess að sýna fram á að þáverandi aðildarferli væri sambærilegt við það sem Íslandi stæði til boða nú. Hann fjallaði hvorki um breytingar á aðferðafræði ESB síðan þá né óvissuna um samningsramma Íslands, sem greinarhöfundur rakti í „Hvaða samningsrammi gildir?“. Conrad þarf að gera grein fyrir þessum mun áður en hann notar norska dæmið með þessum hætti.
Þegar kemur að undanþágum þarf að greina á milli fordæma, lagalegra möguleika og þess hversu líklegt sé að ásættanleg lausn fáist fyrir Ísland. Tilvísanir til Finnlands og Svíþjóðar svara ekki sjálfkrafa spurningum um samningsrammann, málaflokkana eða afstöðu ESB og aðildarríkja þess. Conrad bendir á að í fyrri viðræðum hafi ekki verið samið um sjávarútveg og landbúnað. En hann skautar fram hjá því hvers vegna þessir málaflokkar voru óafgreiddir og hvaða takmarkanir fólust í aðildarferlinu sjálfu. Þótt ekki hafi verið samið um þessi mál er ekki þar með sagt að áframhaldandi viðræður hefðu skilað ásættanlegum lausnum. Kjósendur gátu metið líkurnar á slíkum lausnum öðruvísi en já-hliðin. Það sýnir hvorki misskilning né ótta.
Nei var ekki samþykki við óbreyttu ástandi
Þórdís Kolbrún er kynnt sem sendiherra Íslands í Bretlandi. Í því embætti er hún fulltrúi þjóðarinnar allrar, líka þeirra sem höfnuðu aðildarviðræðum. Það gerir kröfuna um nákvæmni og rökstuðning enn ríkari þegar hún skýrir afstöðu kjósenda fyrir erlendum lesendum. Eigin pólitískt mat verður að vera aðgreint frá fullyrðingum um hvað réð ákvörðun þeirra.
Þórdís bendir á EES sem raunverulegan valkost og viðurkennir að nei sé rökrétt fyrir þann sem telur ólíklegt að ásættanleg niðurstaða náist í sjávarútvegsmálum. Samt fullyrðir hún að sértæk miðun skilaboða, áhersla á tilfinningar kjósenda og órökstuddar fullyrðingar hafi reynst áhrifarík. Hún varar við að stjórnmálaflokkar taki upp sambærilegan málflutning vegna þess að hann hafi skilað árangri. En hún sýnir ekki fram á að þessar aðferðir hafi ráðið afstöðu kjósenda.
Hún telur einnig lítið hafa verið í húfi vegna fyrirhugaðrar síðari þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar birtist sú forsenda sem Baudenbacher véfengir: að það skipti litlu að hefja viðræður fyrst hægt sé að hafna aðild síðar. En möguleikinn á að segja nei síðar segir ekkert um skuldbindingar eða kostnað sem kann að hafa orðið til á leiðinni. Kjósendur máttu meta það öðruvísi en Þórdís.
Þórdís skýrir niðurstöðuna einnig með sátt kjósenda við óbreytt ástand – „comfort with the status quo“. En af því að kjósendur höfnuðu aðildarviðræðum verður ekki ráðið að þeir vilji óbreytt ástand. Þeir geta viljað aðrar breytingar á Evrópusamstarfi en að taka á ný upp aðildarviðræður. Slíkir valkostir voru ekki á kjörseðlinum. Nei við viðræðum verður því ekki túlkað sem almenn stuðningsyfirlýsing við ríkjandi fyrirkomulag.
Ennfremur lýsir hún ástæðum nei-svarsins sem „deep, domestic and largely unglamorous“. Hún nefnir sjávarútveg, gjaldmiðilinn, þægilegt fyrirkomulag í samskiptum við umheiminn og þá trú að alþjóðaskipanin haldist tiltölulega óbreytt þrátt fyrir tímabundið umrót. En sjónarmið um sjávarútveg, landbúnað og svigrúm Íslands til eigin stefnumótunar hafa fullt vægi í umræðunni nú eins og áður. Þau snúast um framtíð atvinnugreina og byggða og ákvörðunarvald yfir mikilvægum hagsmunum. Þeim þarf að svara efnislega. Lýsing á því hversu rótgróin eða lítt tilkomumikil þau séu kemur ekki í stað þess.
Kröfur til fræðilegrar umfjöllunar
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst var ein afmörkuð spurning lögð fyrir kjósendur. Þeir sem greina svarið verða að taka þann möguleika alvarlega að kjósendur hafi skilið spurninguna og komist að annarri niðurstöðu en höfundarnir töldu æskilega. Um þetta er fjallað nánar í grein höfundar, „When Does Political Interpretation Become Academic Analysis?“.
Fræðimenn og fulltrúar Íslands á erlendri grundu verða að greina á milli málefnalegs ágreinings, rangfærslna og fullyrðinga um áhrif á kjósendur. Þeir verða að sýna á hverju ályktanir þeirra byggjast, sérstaklega þegar þeir skýra niðurstöðu íslenskrar þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir erlendum lesendum. Þeir verða einfaldlega að gera betur.
Skýring: „Path dependence“, hér þýtt sem ferilháðni, merkir að fyrri ákvarðanir geti gert erfiðara eða kostnaðarsamara að breyta síðar um stefnu.
Höfundur er hagfræðingur.