Sprengjuleitarhundur var í föruneyti Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Íslandsheimsókn hans. Hundurinn er fyrsti sprengjuleitarhundurinn sem fluttur hefur verið hingað til lands í samræmi við nýjar reglur MAST þar sem undanþága frá einangrun er gefin fyrir hjálpar- og sprengjuleitarhunda.
Hundurinn var fluttur til landsins í samstarfi ríkislögreglustjóra, bandaríska sendiráðsins og MAST.
„Í þessu tilviki vorum við með einn sprengjuleitarhund. Við eigum sjálf hunda hér á Íslandi en í þessu tilviki var ákveðið að láta reyna á breytingar á reglum sem við höfum verið að vinna í með MAST,“ segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra.
„Það var einn hundur sem kom og hjálpaði okkur við þær sprengjuleitaraðgerðir sem þurfti að gera og það gekk bara ljómandi vel.“
Ströng skilyrði sett hundunum sem mega sinna verkefnum í einangrun
Samkvæmt breytingum á reglugerð um innflutning hunda frá nóvember 2025 er undanþága gerð fyrir hjálparhunda og sprengjuleitarhunda. Að undangenginni umsókn og úttekt geta slíkir fengið að vera í svokallaðri heimaeinangrun í stað einangrunarstöðva á vegum MAST. Sprengjuleitarhundar mega samkvæmt reglunum sinna verkefnum á meðan á heimaeinangrun stendur.
Sprengjuleitarhundurinn sem fluttur var inn vegna komu Rubios kom til landsins fyrir viku. Hann fór beint í heimaeinangrun á vegum ríkislögreglustjóra undir eftirliti MAST.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, segir að hundurinn hafi uppfyllt öll heilsufarsskilyrði og að ströngum smitvarnarreglum hafi verið fylgt á meðan hundurinn sinnti verkefnum sínum: hann umgekkst ekki önnur dýr, umráðamaður hundsins var með honum allan tímann, var fluttur milli staða í sérstökum bíl og úrgangur úr honum var hirtur og sótthreinsaður.
„Þetta er ágætisreynsla. Auðvitað eru þau fyllilega meðvituð um hvaða skilyrði þarf að uppfylla. Það þarf að leggja mikla áherslu á smitvarnir en líka velferð hundsins,“ segir Hrönn Ólína.
Hundurinn er á leið aftur af landi brott, en hefði hann verið áfram hefði hann þurft að klára tvær vikur í heimaeinangrun.
„Hann er raunverulega í einangrun allan tímann og sinnir síðan sínum verkum og er svo bara á leiðinni af landi brott,“ segir Karl Steinar.