Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 - Vísir

Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 - Vísir

Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 - Vísir

Þorgerður hafnaði gagnrýninni og sagði frumvarpið eiga að tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja sem íslensk lög tryggðu þeim ekki með fullnægjandi hætti.

Ráðherrann mælti fyrir frumvarpi um bókun 35. Samkvæmt því eiga lagaákvæði sem réttilega innleiða EES-reglur að ganga framar öðrum íslenskum lögum þegar þau stangast á, nema Alþingi mæli sérstaklega fyrir um annað.

Sigríður taldi dómsmálin tvö ekki styðja málflutning ráðherrans. Fæðingarorlofsmálið hefði að hennar mati komið upp þótt bókunin hefði verið innleidd. Í sælgætismálinu hefði stúlkan þegar átt rétt á bótum, en EES-reglurnar hefðu hins vegar takmarkað ábyrgð sjoppunnar sem seldi sælgætið.

Sagði stúlkuna hafa átt kröfu á bæði fyrirtækin

Sælgætismálið snerist um stúlku sem varð fyrir heilsutjóni af sælgæti sem hún keypti í söluturni. Sigríður sagði Þorgerði hafa látið að því liggja að stúlkan hefði aðeins getað sótt bætur til sjoppunnar vegna þess að bókun 35 hefði ekki verið innleidd.

Því mótmælti hún. Stúlkan hefði höfðað mál gegn bæði Biðskýlinu í Njarðvík, sem seldi sælgætið, og innflytjandanum, Sjö tveimur ehf. Að sögn Sigríðar hefðu bæði fyrirtækin verið dæmd bótaskyld og borið sameiginlega ábyrgð á bótunum.

Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sakaði utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum um bókun 35.Vísir/Anton Brink

Innflytjandinn telst framleiðandi í skilningi laga um skaðsemisábyrgð. Þegar rætt er um ábyrgð framleiðandans í þessu máli er því einnig átt við fyrirtækið sem flutti sælgætið til landsins.

„Stúlkan hefði alltaf fengið bætur,“ sagði Þorgerður í fyrri orðaskiptum þeirra og nefndi framleiðandann í framhaldinu. Hún lagði jafnframt áherslu á að frumvarpið snerist um réttindi bæði einstaklinga og fyrirtækja.

EES-reglurnar hefðu takmarkað ábyrgð sjoppunnar

Í framhaldsræðu sinni útskýrði Sigríður nánar hvers vegna hún teldi dæmið villandi. Íslensku lögin hefðu tryggt stúlkunni rétt til að krefja bæði sjoppuna og innflytjandann um bætur. Reglur Evrópusambandsins hefðu hins vegar lagt þrengri skilyrði á bótaábyrgð sjoppunnar.

Sigríður sagði íslensku lögunum hafa verið breytt árið 2014 til samræmis við þær reglur. Kæmi sama mál upp nú hefði stúlkan að hennar mati þurft að láta sér nægja bótakröfu gegn framleiðandanum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafnaði gagnrýni Sigríðar og sagði frumvarpið um bókun 35 eiga að tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja.Vísir/Vilhelm

Gagnrýni hennar snerist þannig um hver bæri ábyrgð á tjóninu. Hún sagði stúlkuna hafa átt bótarétt samkvæmt íslensku lögunum en EES-reglurnar hefðu getað leyst sjoppuna undan ábyrgð. Í þessu dæmi hefðu þær því verndað fyrirtækið fyrir bótakröfu stúlkunnar.

„Evrópusambandsreglurnar vernda nefnilega stundum réttindi fyrirtækja, stundum sérstaklega réttindi einstaklinga, stundum fer þetta saman en stundum vegast á réttindi einstaklinga og fyrirtækja.“

Þess vegna taldi Sigríður rangt að nota málið sem dæmi um að stúlkan hefði farið á mis við réttindi vegna þess að bókun 35 hefði ekki verið innleidd.

Deildu um hvort fæðingarorlofsmálið hefði komið upp

Í fæðingarorlofsmálinu höfðu konu sem starfað hafði erlendis verið ákvarðaðar lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Samkvæmt greinargerð frumvarpsins taldi Hæstiréttur ekki hægt að víkja frá skýru orðalagi íslenskra laga, þótt ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins hefði mælt fyrir um aðra niðurstöðu.

Sigríður spurði Þorgerði hvort niðurstaðan hefði orðið önnur ef frumvarpið um bókun 35 hefði verið orðið að lögum.

„Fæðingarorlofsmálið hefði náttúrulega aldrei komið til ef Alþingi Íslendinga hefði staðið sig í stykkinu og innleitt bókun 35. Þá hefði það ekki komið til,“ svaraði Þorgerður.

Þorgerður Katrín segir innleiðingu bókunar 35 tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja. Sigríður Andersen telur bókunina engu hafa breytt í fæðingarorlofsmálinu og segir EES-reglurnar í sælgætismálinu hafa verndað sjoppuna fyrir bótaábyrgð, en ekki bætt rétt stúlkunnar.Vísir/Vilhelm

Ráðherrann sagði ástæðuna vera að Alþingi hefði ekki lögfest reglu sem tryggði að innleiddar EES-reglur gengju framar öðrum lögum þegar þær stönguðust á. Það væri vandinn sem frumvarpið ætti að leysa.

Sigríður sagði hins vegar að í fæðingarorlofsmálinu hefði sjálf reglugerðin um samræmingu almannatryggingakerfa ekki verið réttilega innleidd. Frumvarpið veitti aðeins réttilega innleiddum reglum forgang og lagaði því ekki þann annmarka.

„Bókun 35 hefði engu máli skipt í fæðingarorlofsmálinu þótt við værum búin að innleiða hana.“

Að mati Sigríðar hefði konan því þurft að höfða mál óháð innleiðingu bókunarinnar. Hún sagði jafnframt ágreining hafa verið um hvernig túlka ætti almannatryggingareglurnar og þess vegna hefði þurft að leita álits EFTA-dómstólsins.

Telur hægt að reikna greiðslurnar með öðrum hætti

Í síðari orðaskiptum benti Þorgerður á að fæðingarorlofslögunum hefði þegar verið breytt og framkvæmdin væri nú í samræmi við EES-samninginn.

Sigríður tók undir að lögunum hefði verið breytt á síðasta ári. Hún taldi hins vegar EES-reglurnar gefa Alþingi meira svigrúm til útfærslunnar en málflutningur ráðherrans gæfi til kynna.

Að sögn Sigríðar væri nú reiknað með íslenskum launum eins og viðkomandi hefði starfað hér í tólf mánuði, þótt hann hefði aðeins unnið hér í stuttan tíma fyrir fæðingu barns. Hún taldi einnig heimilt að miða við launin sem viðkomandi hafði í landinu þar sem hann starfaði áður.

Sigríður sagði þetta skipta máli þegar fólk flytti hingað frá löndum þar sem laun væru lægri. Það væri verkefni Alþingis að ákveða hvernig greiðslurnar væru reiknaðar.

Ósammála um forsendur EES-samningsins

Sigríður sagði stærsta ágreiningsefnið vera hvort heimilt væri að veita innleiddum EES-reglum forgang án þess að breyta stjórnarskránni. Hún taldi slíka reglu fela í sér framsal valds sem samrýmdist ekki óbreyttri stjórnarskrá.

Hún sagði það hafa verið meðvitaða ákvörðun þegar EES-samningurinn var samþykktur að veita þessum reglum ekki almennan forgang. Þess í stað hefði verið lögfest regla um að túlka íslensk lög til samræmis við EES-samninginn.

Þorgerður hafnaði þessari lýsingu. Hún spurði hvað styddi þá fullyrðingu að Alþingi hefði samþykkt EES-samninginn með þeirri forsendu að standa ekki við hann.

Ráðherrann vísaði til Björns Bjarnasonar, sem hefði sagt skilninginn á sínum tíma hafa verið að bókun 35 væri réttilega innleidd. Hefðu menn áttað sig á að svo væri ekki hefðu þeir farið aðra leið.

Þorgerður vísaði einnig til umsagnar Lilju Ólafsdóttur um samningagerðina. Samkvæmt lýsingu ráðherrans hefði niðurstaða viðræðnanna verið að EFTA-ríkin skyldu lögfesta forgang innleiddra EES-reglna þegar þær stönguðust á við önnur landslög.

Sigríður hélt því fram að Alþingi hefði á sínum tíma samþykkt túlkunarreglu og þar með hafnað almennri forgangsreglu.

Sigurður Örn taldi áhrif frumvarpsins takmörkuð

Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði stjórnarliða gera of mikið úr áhrifum frumvarpsins. Mikilvægasta verkefnið væri eftir sem áður að færa efnisreglur EES-samningsins rétt inn í íslensk lög.

Hann sagði bókunina fjalla um takmörkuð tilvik þar sem tvær íslenskar lagareglur stönguðust á. Hún leysti því ekki allan vanda við að samræma íslenska löggjöf og EES-reglur.

Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hvers vegna frumvarpið hefði ekki verið afgreitt í vor þrátt fyrir viðvörun ESA um málshöfðun.Vísir

Sigurður Örn spurði jafnframt hvers vegna frumvarpið hefði ekki verið afgreitt í vor. Hann vísaði til viðtals Ríkisútvarpsins við Árna Pál Árnason, stjórnarmann ESA, 30. september. Að sögn Sigurðar Arnar hafði Árni Páll sagt fulltrúum allra flokka að ESA myndi höfða mál ef frumvarpið yrði ekki afgreitt á vorþingi.

Þorgerður vísaði til þinglokasamninga og sagði flokka í stjórnarandstöðu hafa lagst gegn afgreiðslu málsins. Það hefði verið afgreitt úr utanríkismálanefnd en ekki náð í gegnum þingið.

ESA tilkynnti 30. september að stofnunin hefði höfðað mál gegn Íslandi vegna þess að hún teldi bókun 35 ekki innleidda með fullnægjandi hætti.

#fæðingarorlofsmálum #hafnar #rökum #sem #sælgætis


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262944817d/hafnar-saelgaetis-og-faedingarorlofsmalum-sem-rokum-fyrir-bokun-35

📰 Aðrar fréttir

Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio - Vísir
Töluverður viðbúnaður var vegna komu Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna til landsins. Rubio kom til landsins í gær en fór af landi brott um ...
Orðið á götunni: Næsti forstjóri Landsvirkjunar
📅 06.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Næsti forstjóri Landsvirkjunar
Þótt skammt sé síðan tilkynnt var um starfslok Harðar Arnarsonar er fólk mikið farið að velta fyrir sér hugsanlegum eftirmönnum. Ýmsum virðist umhugað...
Heilbrigðisráðherra um umfjöllun Kveiks: „Þau tilvik sem voru sýnd eru sorgleg“
📅 06.10.2026 👁️ 0
Heilbrigðisráðherra um umfjöllun Kveiks: „Þau tilvik sem voru sýnd eru sorgleg“
Heilbrigðisráðherra segir ekki hægt að fullyrða um hvort notkun geðrofslyfja á hjúkrunarheimilum sé óeðlilega mikil án nákvæmari gagna. Þau atvik sem ...
Tólf hafa sloppið úr bæ sem Rússar sitja um
📅 06.10.2026 👁️ 0
Tólf hafa sloppið úr bæ sem Rússar sitja um
Tólf manns tókst í september að sleppa burt úr bænum Oleshky og komast á yfirráðasvæði Úkraínu. Herinn náði völdum yfir bænum, sem er í Kherson-héraði...
Fara fram á afturköllun umsóknar að ESB
📅 06.10.2026 👁️ 0
Fara fram á afturköllun umsóknar að ESB
Formenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Miðflokksins vilja að umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði formlega ógild.Í þingsályktunartil...
Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar
📅 06.10.2026 👁️ 0
Fá ekki að áfrýja dómi um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til Hæstaréttar
Hæstiréttur hafnaði í gær beiðni landeigenda um að áfrýja dómi héraðsdóms um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til æðsta dómstigsins.Landeigendur t...
Spain approves 21 new housing measures affecting renters, landlords and holiday lets
📅 06.10.2026 👁️ 0
Spain approves 21 new housing measures affecting renters, landlords and holiday lets
The Spanish Government has approved a major new package of 21 housing measures that could have significant implications for renters, landlords, first-...
Að gera kjósendum upp skoðanir
📅 06.10.2026 👁️ 0
Að gera kjósendum upp skoðanir
Erna Bjarnadóttir skrifar: Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið hafa birst nokkrar greinar sem fjalla um ...
Macron boðar ráðherra á fund vegna mótmæla
📅 06.10.2026 👁️ 0
Macron boðar ráðherra á fund vegna mótmæla
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur boðað helstu ráðherra landsins á sinn fund í dag. Ætlunin er að þeir ráði ráðum sínum vegna mikilla mótmæla...
Best websites to buy Bitcoin with a Credit Card in 2026: 5 services we compared
📅 06.10.2026 👁️ 2
Best websites to buy Bitcoin with a Credit Card in 2026: 5 services we compared
The best websites to buy Bitcoin with a credit card need to do more than accept a Visa or Mastercard number at checkout. Card acceptance depends on th...
Fær ekki frekari endurgreiðslu á leigu vegna íbúðar sem kviknaði í
📅 06.10.2026 👁️ 2
Fær ekki frekari endurgreiðslu á leigu vegna íbúðar sem kviknaði í
Kærunefnd húsamála hefur hafnað kröfu konu um hærri endurgreiðslu, en hún hafði þegar fengið, á leigu fyrir íbúð sem varð altjón í vegna bruna. Konan ...
Þjóðkirkjan verulega ósátt og skorar á Alþingi að fara að lögum
📅 06.10.2026 👁️ 2
Þjóðkirkjan verulega ósátt og skorar á Alþingi að fara að lögum
Þjóðkirkjan gerir alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaða upphæð sóknargjalda. Er raunar skorað á Alþingi að fara að lögum um gjaldið og hækka hina fy...
Stéttarfélög vonast eftir frekara samtali við SA í dag
📅 06.10.2026 👁️ 2
Stéttarfélög vonast eftir frekara samtali við SA í dag
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að hún og aðrir viðsemjendur frá LÍV og Fagfélögunum vonist eftir frekara samtali við Samtök atvinnulífsins í Bo...
Marco Rubio á Íslandi
📅 06.10.2026 👁️ 2
Marco Rubio á Íslandi
Marco Rubio á Íslandi Fréttin6. október 2026Björn Bjarnason, Erlent, InnlentLeave a Comment Marco Rubio og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í Safnahúsin...
Bíði og bíði eftir Bjarna - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Bíði og bíði eftir Bjarna - Vísir
Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum.  Frestur til uppsagnar rennur ú...
Sprengjuleitarhundur fluttur inn í fyrsta sinn vegna heimsóknar Rubios
📅 06.10.2026 👁️ 1
Sprengjuleitarhundur fluttur inn í fyrsta sinn vegna heimsóknar Rubios
Sprengjuleitarhundur var í föruneyti Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Íslandsheimsókn hans. Hundurinn er fyrsti sprengjuleitarhundurin...
Leita manna sem grunaðir eru um hópárás - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Leita manna sem grunaðir eru um hópárás - Vísir
Í tilkynningu þess efnis á vef lögreglunnar segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir á þessu stigi rannsóknarinnar leiki grunur á að fleiri...
„Við verðum að vera hávær og ekki leyfa neinum að þagga niður í okkur“
📅 06.10.2026 👁️ 2
„Við verðum að vera hávær og ekki leyfa neinum að þagga niður í okkur“
Nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð segjast vera komnir með nóg og kalla eftir betri úrræðum af hálfu stjórnvalda þegar kemur að kynferðisbrotum. Þol...
Kemi Badenoch: I'd rather have another election than do a deal with Reform UK
📅 06.10.2026 👁️ 2
Kemi Badenoch: I'd rather have another election than do a deal with Reform UK
The Conservative Party leader also pledged to cut the cost of hiring 21 to 24 year olds.
Barnaspítalabindi Billy stal senunni - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Barnaspítalabindi Billy stal senunni - Vísir
Long tók við sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í ágúst síðastliðnum en hafði fyrir það vakið athygli fyrir að lýsa því yfir að hann myndi gera Ís...
Hafi þegar tryggt fjár­mögnun varamótoranna - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Hafi þegar tryggt fjár­mögnun varamótoranna - Vísir
Líkt og Vísir fjallaði um í dag sendi Herjólfur ohf. inn umsögn til fjárlaganefndar Alþingis í gær, þar sem kemur fram að hætta yrði við við kaup á tv...
Sundlaug lokað á Sauðárkróki vegna fjárskorts
📅 06.10.2026 👁️ 3
Sundlaug lokað á Sauðárkróki vegna fjárskorts
Endurhæfingarsundlaug við heilsugæsluna á Sauðárkróki verður að óbreyttu lokuð fram að áramótum vegna fjárskorts. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnuna...
Lítil tengsl milli manns og konu sem hann veitti lífshættulega áverka
📅 06.10.2026 👁️ 1
Lítil tengsl milli manns og konu sem hann veitti lífshættulega áverka
Lítil tengsl eru á milli karls og konu sem hann réðst á í íbúð í fjölbýlishúsi við Engihjalla í Kópavogi í síðustu viku.„Það virðast hafa verið einhve...
Grunur um hópárás með barefli í Reykjanesbæ
📅 06.10.2026 👁️ 3
Grunur um hópárás með barefli í Reykjanesbæ
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudags.Grunur leikur á að fleiri en einn hafi ráðist á brotaþola og...
Leiðtogar Grænlands og Færeyja koma á fund forsætisráðherra
📅 06.10.2026 👁️ 3
Leiðtogar Grænlands og Færeyja koma á fund forsætisráðherra
Lögmaður Færeyja, Beinir Johannessen, og formaður landsstjórnar Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, koma á morgun á fund Kristrúnar Frostadóttur forsæti...
UK special forces could face prosecution as Afghanistan evidence referred to police
📅 06.10.2026 👁️ 3
UK special forces could face prosecution as Afghanistan evidence referred to police
Evidence relating to a number of detention operations carried out by British personnel between 2010 and 2013 is being examined.
Feðgin í fyrsta skipti saman á bæjarstjórnarfundi
📅 06.10.2026 👁️ 2
Feðgin í fyrsta skipti saman á bæjarstjórnarfundi
Feðginin Hjalti „Úrsus“ Árnason og Brynja Hlíf Hjaltadóttir sóttu á dögunum saman 903. fund bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Þetta er nokkur tilviljun þar...
Til í að fórna borgum þar sem demó­kratar eru við völd - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Til í að fórna borgum þar sem demó­kratar eru við völd - Vísir
Ummælin lét Trump falla á fundi með stuðningsmönnum sínum í Nebraska í gærkvöldi. Þar sagði hann meðal annars að hátt olíuverð væri lítið gjald fyrir ...
Ljúfsár stund þegar Gypsy Rose fór með kornunga dóttur sína að kistu barnsföðurins - „Pabbi!“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Ljúfsár stund þegar Gypsy Rose fór með kornunga dóttur sína að kistu barnsföðurins - „Pabbi!“
Ken Urker, kærasti og barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, lést á dögunum 34 ára að aldri. Andlátið hefur vakið athygli þar sem Gypsy Rose er dæmdur morði...
'There are now thousands of people': At the scene of student protests in Lille
📅 06.10.2026 👁️ 3
'There are now thousands of people': At the scene of student protests in Lille
The BBC's Europe correspondent Nick Beake reports from a large demonstration in northern France.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Slakar reglur draga að umsóknir og breyta samsetningu hópsins
📅 06.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Slakar reglur draga að umsóknir og breyta samsetningu hópsins
Við höfum verið með miklu rýmri reglur um dvalarleyfi útlendinga hér á landi en t.d. hin Norðurlöndin. Hér á landi hefur verið hægt að fá ótímabundið ...
Einn þekktasti rannsóknarblaðamaður heims sakar stjórnvöld um að halda uppi áróðri fjölmiðla með skattfé
📅 06.10.2026 👁️ 2
Einn þekktasti rannsóknarblaðamaður heims sakar stjórnvöld um að halda uppi áróðri fjölmiðla með skattfé
Bandaríski blaðamaðurinn Michael Shellenberger segir fjármögnun stórra fjölmiðla eiga þátt í því sem hann kallar blekkingar þeirra um óeirðirnar í Fra...
Olíudraumurinn á Drekasvæðinu virðist úti
📅 06.10.2026 👁️ 3
Olíudraumurinn á Drekasvæðinu virðist úti
Litlar líkur eru taldar á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu svokallaða norðaustur af Íslandi. Þetta er niðurstaða yfirferðar U...
„Makinn er farinn“ – Guðmundur Ingi segir frá fólki sem veit ekkert hvert það á að leita
📅 06.10.2026 👁️ 3
„Makinn er farinn“ – Guðmundur Ingi segir frá fólki sem veit ekkert hvert það á að leita
Eldra fólk sem hefur nýlega misst maka hefur leitað til Guðmundar Inga Kristinssonar þingmanns eftir að hafa fengið „kaldranaleg bréf“ og kröfur frá T...
Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
📅 06.10.2026 👁️ 0
Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu Dr. Hannah CainLæknirinn fannst látin á heimili sínu Heimilislæknir fannst látin á heimili sínu þar ...
Guð­mundur Fer­tram og Fann­ey opna nýsköpunar­setur - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Guð­mundur Fer­tram og Fann­ey opna nýsköpunar­setur - Vísir
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að opnunin sé hluti af fordagskrá Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle, sem hefjist formlega á fimmtudag. Ólafu...
Telur að val á næsta forstjóra Landsvirkjunar gæti komið á óvart
📅 06.10.2026 👁️ 2
Telur að val á næsta forstjóra Landsvirkjunar gæti komið á óvart
Hörður Arnarson lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í síðustu viku vegna ágreinings um stjórnarhætti. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla ...
„Gleðin á að vera í fyrirrúmi“ í íþróttastarfi barna
📅 06.10.2026 👁️ 3
„Gleðin á að vera í fyrirrúmi“ í íþróttastarfi barna
„Börn eru ekki bara litlir fullorðnir. Við getum ekki byrjað að afreksþjálfa börnin 10, 11, 12 ára. Það beinlínis á að vera okkar keppikefli að viðhal...
Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“ Hilmar Garðars ÞorsteinssonTjáði sig á Alþingi fyrr í dag. Mynd: Miðflokkurinn ...
UK to make last-ditch effort to stop Israel closing East Jerusalem consulate
📅 06.10.2026 👁️ 3
UK to make last-ditch effort to stop Israel closing East Jerusalem consulate
Israel has threatened to close the consulate, which handles UK relations with Palestinians in the city, over British sanctions on Israeli settlements.
Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sann­gjarna kröfu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sann­gjarna kröfu - Vísir
Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins sem lagt var fram á Alþingi í gær, 5. október. Hún segir: „Ég hef tekið þessi mál upp á ...
Tugþúsundir mótmæla slæmum námsaðstæðum í framhaldsskólum
📅 06.10.2026 👁️ 3
Tugþúsundir mótmæla slæmum námsaðstæðum í framhaldsskólum
Tugir þúsunda franskra framhaldsskólanema mótmæltu slæmum aðstæðum til náms í fjölda borga og bæja. Yfirfvöld segja 86 þúsund mótmæla utan höfuðborgar...
Gellustælar og ís­lenskar listagyðjur í París - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Gellustælar og ís­lenskar listagyðjur í París - Vísir
Sigríður Margrét, Naza Dapcevic og Karólína Kristbjörg Björnsdóttir stóðu að sýningunni, sem sameinaði ljósmyndun, fatahönnun og skartgripahönnun á ei...
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“ - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“ - Vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók á móti Marco Rubio í Höfða í morgun og saman héldu þau síðan til fundar í Safnahúsinu við Hverfisgötu sem Kristrún ...
Concerns raised over major new tourism development in south Tenerife
📅 06.10.2026 👁️ 3
Concerns raised over major new tourism development in south Tenerife
Plans for a major new tourism development near Playa San Juan in Tenerife have come under scrutiny over their potential impact on the coastline and su...
Litlar líkur að olía finnist í vinnanlegu magni
📅 06.10.2026 👁️ 3
Litlar líkur að olía finnist í vinnanlegu magni
Umhverfis- og orkustofnun telur litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu og telur ekki vera forsendur til að auglýsa e...
Vilja að refsað verði fyrir höfundarréttarbrot í kennslustofum
📅 06.10.2026 👁️ 2
Vilja að refsað verði fyrir höfundarréttarbrot í kennslustofum
Rithöfundasamband Íslands lýsir stuðningi við frumvarp menningarráðherra um að þyngja refsingar fyrir ólöglega dreifingu á sjónvarpsefni. Sambandið vi...
Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
📅 06.10.2026 👁️ 3
Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
Þyngdarstjórnunarlyf hafa tröllriðið lyfjaumræðunni undanfarin ár. Um tíma virtust allir og amma þeirra vera á Ozempic, samheitalyfinu Wegovy eða öðru...
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
📅 06.10.2026 👁️ 3
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, segir formann Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hafa farið með ...
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
Skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar var birt á vef stofnunarinnar í dag en hún byggir á rannsóknum og niðurstöðum leyfishafa sem tóku þátt í síðustu r...