Hæstiréttur hafnaði í gær beiðni landeigenda um að áfrýja dómi héraðsdóms um virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar beint til æðsta dómstigsins.
Landeigendur töldu að dæmdi Hæstiréttur í málinu hefði það verulegt fordæmisgildi, meðal annars fyrir skýringu raforkulaga og skýringu á bindandi réttaráhrifum. Héraðsdómur féllst hins vegar ekki á það.
Deilan snýr að áformum Landsvirkjunar um að reisa og reka virkjun í neðri hluta Þjórsár. Landeigendur stefndu íslenska ríkinu og Landsvirkjun vegna þeirra.
Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní. Þar var ekki fallist á kröfu landeigenda um að ógilda virkjanaleyfið fyrir Hvammsvirkjun.
Þetta er í annað sinn sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar ratar fyrir dómstóla. Fyrra virkjunarleyfið var ógilt í Hæstarétti í fyrrasumar. Í desember var nýtt leyfi gefið út á grundvelli breyttra laga. Landeigendur fóru fram á ógildingu þess fyrir dómi í framhaldinu.