Nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð segjast vera komnir með nóg og kalla eftir betri úrræðum af hálfu stjórnvalda þegar kemur að kynferðisbrotum. Þolendur upplifi aðgerðaleysi og þöggun.
„Við erum komin með nóg“
Boðað var til samstöðufundar með þolendum kynferðisofbeldis fyrir utan Menntaskólann í Hamrahlíð í morgun og gekk fjöldi nemenda út úr tíma til að sækja fundinn.
Ragnheiður Helga Víkingsdóttir, nemandi við skólann og einn skipuleggjenda, segir bæði stjórnvöld og samfélagið sýna aðgerðarleysi þegar kemur að kynferðisbrotamálum.
„Við erum bara svolítið komin með nóg.“
Hanna Imgront, nemandi og skipuleggjandi, tekur undir.
„Stundum þarf maður bara að labba út og láta heyra í sér og öskra. Þetta er fyrst og fremst samstöðufundur og bara frábært að sjá hversu margir komu og sýna að þeir styðja þolendur,“ segir Hanna.
Ragnheiður segir mótmælin ákall til stjórnvalda. Nemendur krefjist breytinga.
„Að þau gefi skólum betri úrræði til þess að vinna með kynferðisbrotamál,“ segir Ragnheiður.
„Það er sagt: „Þetta er skólamál,“ en á sama tíma hefur skólinn ekki úrræði til að stíga inn í mál og styðja þolendur almennilega, svo þau geti búið til öruggt umhverfi í skólanum,“ bætir Hanna við.
Hún segir mótmælin í svipuðum anda og mótmælin sem voru við MH og í fleiri framhaldsskólum víða um land á sama tíma fyrir fjórum árum. Ragnheiður segir ýmislegt hafa breyst frá þeim tíma. Þó þurfi að gera betur.
„Það hafa verið mjög jákvæðar breytingar. Við erum hér í MH komin með mjög gott teymi. En það er ekki nóg. Það er ekki nóg að setja bara einhver falleg orð á heimasíðu. Við þurfum aðgerðir.“
Þær segja að Cornell-málið, sem upp kom í Bandaríkjunum um mánaðarmót hafa haft mikil áhrif. Mikið sé rætt um málið innan þeirra raða.
„Það er svo galið að hugsa sér að við búum í heimi þar sem hópur karlmanna getur gert eitthvað svona ógeðslegt og hrikalegt við aðra manneskju, skaðað sál og líkama annarrar manneskju og eina refsingin þeirra er að skrifa ritgerð um hversu illa þeim líður yfir því. Það er fáránlegt,“ segir Hanna.
Þolendur upplifi aðgerðaleysi og þöggun
Halldór Gauti Tryggvason segist fyrst og fremst hafa mætt á fundinn til að sýna samstöðu og stuðning við þolendur kynferðisbrota.
„En líka bara halda gangandi svo ótrúlega mikilvægri umræðu sem má ekki þagga niður.“
Hann segir að þrátt fyrir að málaflokkurinn geti verið flókinn sé mikilvægt að gefa skólunum betri úrræði fyrir þolendur, með raunverulegum afleiðingum. Þolendur upplifi aðgerðaleysi og þöggun.
Rauður er hávær litur
Hilmir Þór Snæland Hafsteinsson og Alex Dara Björg Brynjudóttir mættu bæði með rauðan varalit. Þau segja ástæðuna margþætta.
„Rauður er hávær litur og við erum að vera hávær og ekki leyfa neinum að þagga niður í okkur. Rauður hefur alltaf verið baráttulitur, við erum að halda því áfram og kemur líka frá sérstaklega í Þýskalandi fyrir ekki svo löngu, þar sem maður dissaði þingkonu fyrir hvernig hún var máluð. Kvenleikinn er fallegur og það eru allir kvenlegir að einhverju leyti og rauði varaliturinn er að sýna það í samstöðu,“ segir Alex Dara. Hilmir Þór tekur undir.
„Við viljum sýna að þolendur eru ekki einir og sýna stuðning með þolendum.“
Alex segir Cornell-málið hafa haft mikil áhrif.
„Ég vil ekki að við köllum þetta Cornell sjö. Mér finnst það lítillækka alvarleika málsins. Þetta voru ekki bara sjö, það voru einhverjir 50 drengir inni á þessu hópspjalli og þeir gerðu ekki neitt. Þannig þeir eru hluti af vandamálinu. Og skólinn er líka hluti af vandamálinu fyrir að hafa ekki gert neitt. Við megum aldrei hætta að tala um þetta og vera hávær.“
Þá þurfi fólk að vera meðvitað um að nauðgunargrín sé aldrei í lagi.
„Maður á alltaf að segja eitthvað ef það er verið að tala um eitthvað svoleiðis. Því ef þú gerir ekki neitt, þá ertu partur af vandamálinu,“ segir Hilmir.