Lítil tengsl eru á milli karls og konu sem hann réðst á í íbúð í fjölbýlishúsi við Engihjalla í Kópavogi í síðustu viku.
„Það virðast hafa verið einhver tengsl en ekki mikil. Þau þekktust,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Rúmlega fertugur Íslendingur réðst á konu á heimili sínu kvöldið 28. september og veitti henni lífshættulega stunguáverka. Hún lá um tíma á gjörgæslu. Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps.
Ævar segir rannsókninni miða ágætlega. Málsatvik liggi nokkuð ljós fyrir. Búið er að yfirheyra konuna sem var útskrifuð af gjörgæslu í síðustu viku. Engin vitni urðu að árásinni.
Lögregla hefur lagt hald á stunguvopn. „Við teljum okkur vera með vopnið sem var notað,“ segir Ævar Pálmi.
Lögregla bíður nú gagna, svo sem læknisvottorða og gagna tengdum áverkaskoðun.
Karlmaðurinn situr í gæsluvarðhaldi til 27. október.