Heilbrigðisráðherra segir ekki hægt að fullyrða um hvort notkun geðrofslyfja á hjúkrunarheimilum sé óeðlilega mikil án nákvæmari gagna. Þau atvik sem sýnd voru í þætti Kveiks í síðustu viku séu sorgleg.
Þetta kemur fram í svörum heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu.
Ekki hægt að fullyrða hvort notkunin sé óeðlilega mikil
Alma Möller heilbrigðisráðherra, segir atvikin sem sýnd voru í fréttaskýringaþættinum Kveik, þar sem fjallað var um notkun geðrofslyfja á hjúkrunarheimilum, sorgleg. Ekki sé hægt að fullyrða um hvort notkun geðrofslyfja á hjúkrunarheimilum sé óeðlilega mikil, nema fyrir liggi nákvæmari gögn.
Heilbrigðisráðuneytið hafi í kjölfar þáttarins kallað eftir upplýsingum frá embætti landlæknis til að meta hvort tilefni sé til að skoða geðrofslyfjanotkun hjúkrunarheimila frekar. Þá hyggist ráðuneytið kalla eftir upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands.
Lyfin oft notuð við rugli, svefnleysi eða ógleði
Alma segir að samkvæmt núgildandi kröfulýsingu fyrir hjúkrunarheimili móti hjúkrunarheimilin sjálf lyfjastefnu fyrir eigin starfsemi. Í kröfulýsingunni komi fram að sporna skuli við fjöllyfjanotkun og nýta greiningartækni sem gagnist við að greina og sporna við óviðeigandi lyfjameðferð.
„Það gildir um öll lyf að það á að vera meginmarkmið að nota þau aðeins þegar þörf krefur, að nota þau ekki í stærri skömmtum en nauðsynlegt er og að hætta notkun þeirra eins fljótt og skynsamlegt er og mögulegt,“ segir Alma.
Þau lyf sem fjallað var um í Kveik séu oft prófuð eða notuð, til dæmis við rugli, svefnleysi eða ógleði, í lágum skömmtum.
„Því þurfa að liggja fyrir upplýsingar um skammtastærðir og tíðni notkunar áður en hægt er að álykta um hvort notkun sé mikil, og eins til hvaða ráðstafana hafði verið gripið til áður en lyfjanotkun var reynd,“ segir Alma.
Fjöllyfjanotkun á Íslandi meiri en tíðkast í nágrannalöndum
Heilbrigðisráðherra segir að lyfjanotkun á mörgum sviðum hér á landi, svo sem fjöllyfjanotkun, sé meiri en tíðkist í þeim löndum sem Ísland beri sig gjarnan saman við.
„Það er viðvarandi verkefni að sýna aga í lyfjanotkun. Hvernig við stöndum hvað þetta varðar í samanburði við hjúkrunarheimili í grannríkjum okkar eru upplýsingar sem ég hef óskað eftir,“ segir Alma.
Of snemmt sé að segja til um hvort þurfi að fara í markvisst átak til að draga úr notkun slíkra geðrofslyfja á hjúkrunarheimilum. Endurskoðun lyfjagjafar þurfi þó reglulega að endurskoða, sér í lagi hjá eldra fólki.
„Almennt hef ég á tilfinningunni að það þurfi að fylgja lyfjameðferð betur eftir, skoða aukaverkanir á móti virkni og meta hvort ávinningur sé meiri en áhætta af notkun,“ segir Alma.
„Eins er eðlilegt að hafa samráð við heimilisfólk eða aðstandendur eftir atvikum til að meta hvernig lyfjameðferð vindur fram. Aðstandendur þekkja jafnan einstaklinginn best og hafa því innsýn sem skiptir máli þegar ákveðið er hvort notkun geðlyfja sé réttmæt eða ekki.“
Heilbrigðisstofnunum verði skylt að skrá lyfjafyrirmæli í lyfjagagnagrunn
Alma hyggst leggja fram að nýju frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti, en frumvarpið var fyrst lagt fram á síðasta þingi.
Í frumvarpinu er ákvæði sem setur skyldur á heilbrigðisstofnanir um að skrá lyfjafyrirmæli í lyfjagagnagrunn embættis landlæknis, þar með talin hjúkrunarheimili.
„Þar kæmi þá fram við hverju lyfið er gefið, til dæmis í því tilfelli sem hér er til umræðu, hvort geðrofslyf væri notað við staðfestum geðsjúkdómi eða sem einkennameðferð við til dæmis heilabilun,“ segir Alma.
Nauðsynlegt að huga að öðrum leiðum til að þjónusta fólk með heilabilun
Alma segir biðlista eftir hjúkrunarrýmum hafa verið alltof langan og nauðsynlegt að bæta þar úr. Á sama tíma þurfi þó að huga að öðrum og fjölbreyttari leiðum til að þjónusta eldra fólk og fólk með heilabilun.
„Við erum að byggja upp fleiri sérhæfð dagdvalarrými fyrir fólk með heilabilun, þar sem fólk dvelur yfir daginn og fær viðeigandi þjálfun og þjónustu en býr áfram heima. Í dag eru þessi rými rúmlega 300 talsins. Á þessu ári einu og sér höfum við fjölgað sérhæfðum dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun um þrjátíu og eitt,“ segir Alma.
Þá sé heilbrigðisráðuneytið með til skoðunar að setja á laggirnar fleiri sérhæfðar deildir fyrir aðra hópa eldri borgara, til að mynda þá sem eru með fíknisjúkdóma, sérstaka taugasjúkdóma á borð við MND og sérstaka aðra líkamlega sjúkdóma.
Alma segir fjölmargt hægt að læra af heilabilunarþorpinu í Hogeweyk í Hollandi, sem fjallað var um í Kveik. Fjöldi Íslendinga hafi farið þangað til að kynna sér og fræðast um starfsemina. Hægt væri að innleiða slíka nálgun á hefðbundnum hjúkrunarheimilum.
„Það er ekki verið að vinna að því í ráðuneytinu að koma á sérstöku heilabilunarþorpi í anda Hogeweyk, hvað sem síðar verður,“ segir Alma.