Endurhæfingarsundlaug við heilsugæsluna á Sauðárkróki verður að óbreyttu lokuð fram að áramótum vegna fjárskorts. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir frekari niðurskurð fram undan.
„Almennt séð þá er rekstur heilbrigðisstofnananna mjög þungur þessa daganna og kröfur um að kostnaður sé lækkaður, þar af leiðandi eru ýmsir þeir rekstrarhættir sem eru ekki alveg bein grunnstoð, þjónusta undir skoðun. Og menn mega búast við frekari aðgerðum á næstu vikum“, segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
Hann vildi ekki svara því hvaða hagræðingaraðgerðir væru fram undan.
Hann segir að með þessu sé verið að skera niður starfsemi sem heyri sögunni til víðar um landið, heilbrigðisstofnanir hafi einfaldega ekki fjármagn í verkefni sem þessi. Lauginni var lokað í sumar og hefur ekki verið opnuð aftur, Jón Helgi segir stöðuna verða endurmetna á nýju ári.
Á Sauðárkróki er rekin heilsugæsla en þar er einnig sjúkrahúsdeild þar sem fer fram endurhæfing. Sundlaugin hefur verið nýtt til endurhæfingar síðan upp úr aldamótum en Jón Helgi segir hana líka nýtta í ýmislegt annað.
Vilja ræða aðkomu sveitarfélagsins
Þar hefur HSN haft einn starfsmann en segir kostnaðinn snúa einna helst að húsnæðinu, það sé dýrt að reka sundlaug.
Þau vildu gjarnan halda lauginni opinni, en til að það verði þurfi eitthvað að breytast.
„Við þurfum annars vegar fjármagn svo er kannski eðlilegt að þeir komi að rekstrinum sem eru að nota þetta aðrir en heilbrigðisstofnunin, eins og sveitarfélagið. Það er líka kostur sem við viljum gjarnan ræða við sveitarfélagið.“