Brúin yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi við Sultartanga er lokuð vegna skemmda á brúarhandriði en steypubíll fór út af á brúnni í gærkvöld.
Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að viðgerð á brúarhandriðinu muni taka nokkra daga svo leiðin verður lokuð eitthvað fram í vikuna. Hjáleið er um Landveg til að komast í Landmannalaugar eða á Sprengisandsleið.