Nokkrar breytingar verða gerðar á ráðherraliði norsku ríkisstjórnarinnar í dag. Norska ríkisútvarpið, NRK, segir að ráðherrum samgöngumála, umhverfis- og loftslagsmála, háskólamála og stjórnsýslumála verði skipt út. Þá mun einn ráðherra flytjast milli ráðuneyta.
Hákon VIII konungur kynnir ríkisstjórninni breytingarnar fyrir hádegi í dag og svo kemur ný ríkisstjórn saman á fundi eftir hádegi.
Stjórnmálaskýrandi NRK segir breytingarnar „sumpart leiðinlegar“. Tæpur mánuður er í að norska ríkisstjórnin kynni fjárlög næsta árs.
Mörgum þykir of mikil höfuðborgarslagsíða í nýrri ríkisstjórn. NRK segir að sex ráðherrar séu frá Osló, eða þriðjungur.