Umbótaflokkur Nigel Farage í Bretlandi er til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um brot á lögum um fjármögnun frá útlöndum. Rannsóknin byggir meðal annars á leynilegum upptökum.
Verbatim eða orðrétt kalla þau sig, hópur rannsóknarblaðamanna sem stendur að umfjölluninni. Í næstum ár þóttist fréttamaður vera áhugasamur fjárfestir frá Bandaríkjunum sem leitaði leiða til að fjármagna flokkinn.
Hann tók upp tvo hátt setta ráðgjafa. Dan Jukes sem var starfsmannastjóri Farage og James Orr sem varð yfirmaður stefnumótunar - þeir hættu báðir eftir að umfjöllunin var birt fyrir helgi.
„Það ratar í hárréttan stað, tiltölulega góð kaup fyrir peninginn, hefur mikil áhrif og kemur hvergi fram í bókhaldinu,“ heyrist Dan Jukes, þáverandi ráðgjafi Farage, segja meðal annars.
Farage sjálfur kemur fram í upptökunum og virðist meðvitaður um hvað sé rætt.
Fréttamaður Verbatim segir: „Ég rek bandarískt fjárfestingarfyrirtæki og hef ekki getað lagt til fé beint, fram til þessa. En það gladdi mig mikið að hafa getað borgað reikninginn fyrir skoðanakannanirnar sem þú pantaðir.“
„Það er frábært,“ svarar Farage.
Segist ekki hafa verið að hlusta
En í viðtali við BBC daginn eftir að upptökurnar voru birtar sagði Farage: „Ég mæti og var ekki að hlusta, spurði bara hvort allt væri ekki löglegt. Ég kom bara til að segja halló.“
Umbótaflokkurinn hóf innri rannsókn á málinu. Jukes og Orr neita báðir að hafa brotið lög en breska lögreglan staðfesti í gær að rannsókn væri hafin og búið væri að óska eftir myndefni frá umfjöllun Verbatim.
Lögreglan var þegar að skoða önnur fjárframlög til flokksins fyrir kosningarnar 2024.