Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, enn ekki hafa komist í grennd við hvalveiðiskipin tvö.
Samtökin héldu því fram í færslu á samfélagsmiðlum í gær að Bandero væri nú á leiðinni á hvalamið.
„Við höldum áfram að vakta skipið en það hefur ekki verið í grennd við eða ógnað hvalveiðiskipunum,“ segir Ásgeir.
Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða í gær eftir að hafa legið við bryggju í nokkra daga vegna slæms veðurs.
Bandero er vestan við landið fyrir utan landhelgina.