Páll Vilhjálmsson skrifar:
Loftslagskirkjan notar orðið bakslag þegar almenningur hættir að trúa að loftslagsvá vofi yfir. Í transinu tala menn um bakslag þegar fólk hafnar að kynin séu fleiri en tvö og ranghugmyndinni um að sumir fæðist í röngum líkama. Nú notar Kristrún orðið bakslag um stöðu verðbólgu, vaxta og efnahagsmála.
Kristrún ímyndaði sér að vörugjaldshækkanir um áramót myndu ekki hækka verðbólgu. Hún ímyndaði sér að tvöföldun á veiðigjöldum ylli ekki samdrætti í atvinnulífi sjávarplássa. Forsætisráðherra ímyndar sér að tenging bóta almannatrygginga við launaþróun hafi ekki áhrif á verðbólgu. Stjórnmál.is vitna í hagfræðinginn Daða Kristjánsson:
Það er sláandi að sjá hvernig hið opinbera hefur verið leiðandi í hækkun verðbólgunnar. Opinber þjónusta hefur hækkað um næstum 30% á sl. 12 mánuðum [...] hið opinbera hefur einnig leitt launahækkanir í landinu og hækkuðu laun um 11% í fyrra. [...] Langstærsti sökudólgur verðbólgunnar (og þar með gríðarlega hárra vaxta í landinu) er hin gegndarlausa óráðsía hins opinbera.
Bakslagið kom, segir Kristrún, sökum þess að ríkisstjórnin ,,freistaðist til að fagna of snemma." Nei, Kristrún, bakslagið margfræga er afhjúpun á þeim sannindum að brúðuleikhús ímyndunarveikra blekkir aðeins um stund. Kaldur veruleikinn sækir fyrr en síðar firringuna heim og rífur í sig leiktjöldin.
Í tilefni af vaxtahækkun í gær sendir seðlabankastjóri Ásgeir Jónsson þau skilaboð að Kristrún og félagar kunni ekki grunnhugtök hagfræði:
Það skiptir líka máli hvort að ríkið sé að stækka eða ekki. Vegna þess að ef þú skattleggur og eyðir peningunum í ríkisútgjöld, jafnvel þó að það sé ekki halli, þá örvar það kerfið. Þetta er eitthvað sem er kennt í grunnnámskeiðum í hagfræði. Ég vona að það sé hugsað um alla þessa fleti þegar það er hugað að ríkisfjármálum (feitletr. pv)
Kristrún státar af prófgráðu í hagfræði og sama gildir um Daða Má fjármálaráðherra. En bæði eru svo illa gáttuð í dúkkulísulandi að þau sjá ekki veruleikann sem við blasir.
Kristrún hefur ekki einu sinni fyrir að endurnýja slagorðin frá kosningabaráttunni. Ég er víst með plan hvíslar hún úr neðanjarðarbyrginu.
Orðfærið kemur upp um forsætisráðherra. Bakslag er dulkóðað vinstraorð yfir uppgjöf. Annar þáttur leiksýningarinnar er hafinn, að kenna öðrum um ófarnaðinn. Þýska stálið hennar Kristrúnar, Þórður Snær, fyrrum sakborningur í byrlunar- og símamálinu, útskýrði efnahagsástandið í dag með Covid-19 faraldrinum fyrir fimm árum. Kristrúnarhirðin má ekki til þess hugsa að missa forréttindin, þægilega innivinnu á opinberu framfæri.
Eftir rúmt ár við stjórnvölinn er ríkisstjórnin komin að fótum fram. Vanstilling Kristrúnar í ræðustól þingsins staðfestir að hún veit að í óefni er komið. Bakslag er orðið, merkingin er uppgjöf.