Áslaug Arna útskrifuð

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra, hefur lokið meistaranámi í alþjóðlegri opinberri stjórnsýslu við Columbia University í New York City.
Í færslu sem Áslaug birti á Instagram greinir hún frá því að námið hafi verið einn merkilegasti tími lífs hennar og tengir ákvörðunina við minningu móður sinnar.
„Ég gerði það. Þegar ég var að alast upp heyrði ég móður mína oft tala um hversu umbreytandi árið hennar í Bandaríkjunum hefði verið þegar hún var í meistaranámi þar. Eftir að hún lést bar ég þá hugmynd alltaf með mér. Ég vildi einhvern daginn feta í hennar fótspor og fara sjálf í nám erlendis,“ skrifar Áslaug.
Hún segir pólitískan feril sinn hafa þróast hratt og því hafi rétti tíminn aldrei gefist fyrr en á síðasta ári.
„Þetta ár varð því ekki ár þar sem ég jafnaði mig eftir að hafa misst hlutverk sem mig langaði mjög mikið í. Þess í stað varð það eitt merkilegasta ár lífs míns, ár sem ég myndi ekki skipta út fyrir neitt,“ skrifar hún enn fremur.
Í lok færslunnar sendir hún móður sinni sérstaka kveðju:
„Elsku mamma, fyrir þig ❤️“