Magnús Þór Jónsson, Megas, tónlistarmaður, rithöfundur og myndlistarmaður, lést á hjúkrunarheimilinu Grund í gærkvöldi, 81 árs að aldri.
Magnús fæddist 7. apríl 1945 og er sonur skáldkonunnar Þórunnar Elfu Magnúsdóttur og Jóns Þórðarsonar kennara og rithöfundar.
Megas byrjaði snemma að fást við lagasmíðar og textagerð. Sem unglingur las hann Gerplu eftir Halldór Laxness og seinna Passíusálma Hallgríms Péturssonar en í gegnum þær bókmenntir öðlaðist hann ást á tungumálinu. Skömmu síðar kom rokkið og Elvis Presley sem hafði mikil áhrif á hann.
Magnús samdi mörg af ástsælustu dægurlögum Íslendinga og má þar t.d. nefna Spáðu í mig, Tvær stjörnur og Fatlafól.
Eftir hann liggur mikið ævistarf, tugir hljómplatna, skáldsögur, ævisögur og myndlist.
Hann hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín en árið 2003 fékk hann úthlutað heiðurslaunum listamanna. Þá hlaut hann verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til varðveislu íslenskrar tungu.
Magnús lætur eftir sig unnustu, börn, systkini, barnabörn og barnabarnabörn.
Fréttin hefur verið uppfærð.
