Í hugleiðingur veðurfræðings Veðurstofu Íslands segir að grunnar lægðir stjórni veðrinu á norðan- og austanverðu landinu í dag. Búast má við norðvestan strekking.
Hiti verður á bilinu sjö til sautján stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á morgun verður hins vegar hlýjast á Vesturlandi þar sem hitinn gæti farið upp í nítján stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og bjart með köflum, en skýjað og líkur á dálítilli vætu norðaustantil. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast sunnanlands.
Á mánudag:
Suðaustan 8-13 m/s sunnanlands og skýjað með köflum, en yfirleitt þurrt, en annars hægari vindur og bjart að mestu. Hiti 8 til 17 stig, mildast norðan- og vestanlands.
Á þriðjudag:
Suðaustan 5-10 m/s, en 10-18 við suðurströndina. Rigning, en úrkomuminna um landið norðaustanvert. Dregur úr vindi seinnipartinn. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Suðlæg eða breytileg átt og skúrir, en þurrt að kalla austanlands. Hiti 8 til 18 stig, mildast norðaustantil.
Á föstudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með skúrum eða dálítilli rigningu, en að mestu bjart suðaustantil.