Gasnotkun eykst á sumrin þegar fólk heldur í ýmis ferðalög, hvort sem það eru útilegur eða sumarbústaðaferðir. Þá verður algengara að fólk grípi í grillspaðana þegar veður hlýnar.
Að ýmsu er þó að huga þegar gas er meðhöndlað.
„Það er ákveðin varúð og virðing sem maður þarf að hafa í huga með allan svona búnað,“ segir Einar Daníelsson, verkefnastjóri slysavarna hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Hann segir að gullna reglan sé að hafa hugann við það sem maður er að gera.
„Það eru yfirleitt góðar leiðbeiningar með þessum eldfimu græjum.“
Einar bendir á að einkum þurfi að passa upp á að búnaður hafi ekki orðið fyrir hnjaski. Huga þurfi að því að allt sé vel klemmt og allar slöngur heilar.
Tjöld eru eldfim og passa þarf að ekki kvikni í þeim ef opinn eldur er kveiktur inni í þeim. Þá þarf að hafa í huga að ef eldur logar þá er hann að brenna súrefni.
Mælt með gasskynjurum innandyra
Einar bendir á að gott sé að fara yfir búnað áður en lagt er af stað í ferðalög. Og passa uppá að lokað sé fyrir allan gasbúnað áður en farið er að sofa.
„Að maður sé ekki að sofna út frá hitara eða neinu öðru sem er að nota gas.“
Ef fólk notar gas innandyra er mælt með því að þar séu gasskynjarar. Það getur einnig verið gott þegar gas er notað inni í hjólhýsum eða fellihýsum.
„Almennt séð er þetta með þetta eins og allt annað. Þú ferð ekki að sofa með eitthvað logandi. Þú skilur ekki neitt eftir í gangi,“ segir Einar.
Hann segir sem betur fer mjög óalgengt að slys tengd gasnotkun komi fyrir.