Fimmtíu menn sem náðust á myndband á leið til vændiskvenna á vegum kínversks glæpahrings fyrir tæpum mánuði verða kallaðir í skýrslutöku, segir lögregla. Sextán vændiskonur sem höfð voru afskipti af afþökkuðu allar aðstoð.
Lögreglurassían, sem stóð í viku fyrir tæpum mánuði, var hluti af risavaxinni samræmdri alþjóðlegri aðgerð sem kallaðist Global Chain, eða Heimskeðjan. Slíkar aðgerðir hafa farið fram áður en aldrei verið jafnstórar og í ár.
Lögreglan setti meðal annars upp eftirlitsmyndavélar við tvö vændishús sem talið var að kínversk glæpasamtök stýrðu. Fimm vændiskaupendur voru handteknir en miklu fleiri náðust á myndbandsupptökur lögreglu.
„Myndefni af yfir 50 einstaklingum er til og er til rannsóknar og þessir einstaklingar verða kallaðir fyrir vegna gruns um að kaupa vændi,“ segir Gunnar Axel Davíðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig að þið vitið eða eruð að reyna að komast að því hverjir þeir eru sem ekki er búið að handtaka?
„Já, í raun og veru, það er rétt.“
Engar undir lögaldri á Íslandi
Lagt var hald á jafnvirði um tveggja milljóna króna í reiðufé, þrettán síma og ellefu skilríki. Alls voru höfð afskipti af sextán konum, sem allar eru taldar þolendur vændismansals. Konurnar voru af ýmsum þjóðernum og aðeins sumar þeirra voru í kínversku vændishúsunum tveimur.
„Við ræddum við þessar sextán núna í ár og buðum þeim aðstoð og það er undir þeim komið að þiggja það – engin þeirra þáði það og svo sem ekkert meira sem við gerum í því,“ segir Gunnar Axel.
Eru þær farnar af landi brott?
„Ég hef ekki hugmynd.“
Í alþjóðlegu aðgerðunum var nokkuð um að þolendurnir væru undir lögaldri. Það var þó ekki hér.
„Nei, það hefur ekki verið og við höfum ekki séð það í þessum aðgerðum hingað til – sem betur fer,“ segir Gunnar Axel.
Mikilvægt að samræma aðgerðir
Aðgerðin Heimskeðja, eða Global Chain, var risavaxin. Hún náði til 59 landa í fimm heimsálfum. Um 40 þúsund lögreglumenn og tollverðir tóku þátt í henni. Yfir þúsund voru handteknir, þar af 334 grunaðir um mansal. Ætlaðir þolendur í málunum eru yfir tvö þúsund í 45 löndum, mestallt konur, og af þeim eru 162 undir lögaldri.
Á heimsvísu beindust aðgerðirnar gegn fjölmörgum og ólíkum glæpahópum, en Stefán Sveinsson, fulltrúi Íslands hjá Europol, segir að engu að síður geti verið mikilvægt að samræma aðgerðir af þessu tagi.
„Þessi fórnarlömb eru flutt yfir mörg landamæri, jafnvel milli heimsálfa, til þess að seldur sé aðgangur að þeim í Evrópu,“ segir Stefán. „Og við sjáum mikið af fórnarlömbum bæði frá rómönsku Ameríku og svo Asíu og til þess að berjast gegn svona starfsemi er nauðsynlegt að beita samþættri nálgun margra landa á sama tíma.“
Bókaðar í gegn um miðlægt innhringiver í öðru landi
Stefán segir að konur sem séu seldar í vændismansal á Íslandi fái að líkindum fyrirmæli að utan.
„Það eru allar líkur á að skipuleggjendur þessarar starfsemi séu ekki staddir á Íslandi,“ segir hann.
„Og það sem við erum æ oftar að sjá eru þessi svokölluðu call center eða innhringimiðstöðvar, sem eru á einum stað en bóka vændiskaup í mörgum löndum. Þannig að þolendurnir og vændiskonurnar sem eru að fá til sín kaupendur, þær eiga engin samskipti við þessa kaupendur fyrr en þeir bara mæta á tröppurnar hjá þeim,“ segir Stefán Sveinsson.