430 aðgerðarsinnar af bátum Global Sumud Flotilla eru í haldi Ísraelsmanna eftir að Ísraelsher stöðvaði skip aðgerðarsinna á leið til Gaza á mánudaginn. Þar af eru að minnsta kosti 12 írskir ríkisborgarar og 11 Kanadamenn.
Fólkið var um borð í nokkrum skipum sem voru á leið til Gaza með hjálpargögn þegar skip á vegum ísraelska hersins stöðvaði för þeirra. Búið er að flytja fólkið um borð í ísraelsk skip og verið er að flytja það til Ísraels.
Ein þeirra handteknu, Dr Margaret Connolly, er systir írska forsetans Catherine Connolly, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Forsætisráðherra Írlands, Micheál Martin, sagði í samtali við BBC að fólk eigi rétt á að mótmæla og taka þátt í aðgerðum sem beina sjónum að skelfilegu mannúðarástandi á Gaza. Hann sagði að Írland ætli að taka þetta málefni fyrir á vettvangi Evrópusambandsins.
Vill að fólkinu verði sleppt strax
Þá hefur írski utanríkisráðherrann Helen McEntee kallað eftir því að írskum ríkisborgurum sem sé haldið ólöglega verði sleppt strax. Hún sagði að utanríkisráðuneytið og írska sendiráðið í Ísrael væru í samskiptum við ísraelsk yfirvöld til að tryggja að fólkið fengi aðgang að ræðisskrifstofum og stuðning frá starfsfólki sendiráðsins sem allra fyrst.
Samkvæmt aðgerðarhópnum Global Sumud Flotilla voru skipin að flytja matvæli, ungbarnamjólk og heilbrigðisaðstoð til Gaza. BBC hefur eftir ísraelska utanríkisráðuneytinu að neyðaraðstoð flæði yfir Gaza og 1,5 tonn af hjálpargögnum og þúsundir tonna af lækningavörum hafi verið flutt á svæðið á síðustu sjö mánuðum.
Hafa áður stöðvað siglingar aðgerðarsinna
Kanadíska ríkisútvarpið CBC greinir frá því að 11 af 12 Kanadamönnum sem tóku þátt í aðgerðinni hafi verið handteknir. Alls lögðu 50 skip af stað frá Marmaris í Tyrklandi í síðustu viku áleiðis að Gaza. Að minnsta kosti 17 bátar voru stöðvaðir innan þriggja tíma frá brottför, úti fyrir landhelgi Kýpur.
Tyrknesk stjórnvöld hafa líkt aðgerðum Ísraelsmanna gegn skipum aðgerðarsinna við sjórán. Ísraelsmenn hafa ítrekað stöðvað sams konar siglingar aðgerðasinna, síðast í apríl.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um heildarfjölda hinna handteknu.