100 ára afmælinu var fagnað í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli þar sem kvenfélagskonur fögnuðu tímamótunum. Í anddyrinu var sögusýning úr starfsemi Einingar sem fólk hafði gaman af að skoða.
Kvenfélagið var stofnað í Hvolhreppi en nú heitir sveitarfélagið Rangárþing eystra. Nokkur ávörp voru haldin í afmælinu og að sjálfsögðu svignaði veisluborðið af veitingum frá kvenfélagskonunum.
„Félagið hefur náttúrulega verið mjög kraftmikið í gegnum árin og styrkt innviðina hér sérstaklega. Það er náttúrulega eins og önnur kvenfélög landsins en við höfum til dæmis styrkt skólann, heilsugæslustöðina og björgunarsveitina og allt þetta,” segir Margrét Guðjónsdóttir, formaður afmælisnefndar Einingar.
Þannig að þetta er skemmtilegur félagsskapur?
„Þetta er afskaplega skemmtilegur félagsskapur og ég myndi hvetja allar konur til að reyna að komast í þennan félagsskap,” segir Margrét.
Margrét Tryggvadóttir hefur verið kvenfélagskona í Einingu í að verða 40 ár og líkar það vel.
„Það er bara alltaf gaman, alltaf gaman. Það eru konurnar, félagarnir, sem eru svona skemmtilegar, við getum alltaf hlegið smá”, segir Margrét alsæl kvenfélagskona.
Forseti Kvenfélagasambands Íslands, Dagmar Elín Sigurðardóttir, mætti að sjálfsögðu í aldarafmælið.
„Kvenfélagskonur um allt land eru tæplega fjögur þúsund og við erum mjög stoltar af okkar kvenfélagskonum,” segir Dagmar.
Hvetur þú ungar konur til þess að ganga í kvenfélag?
„Alveg klárlega vegna þess að kvenfélögin eru síung og það er svo gaman við það hjá kvenfélögunum að það safnast saman yngri og eldri og það er svo gaman að vera með öllum aldurshópum.”