Engar eignir hafa fundist í þrotabúum þriggja nátengdra félaga í veitingarekstri. Gjaldþrotin nema í heild um 603 milljónum króna. Eitt tengt félag til viðbótar er enn í gjaldþrotameðferð og því gæti talan úr þessari þrotahrinu átt eftir að hækka frekar.
Skiptum á tveimur búum er nú nýlokið og auglýsingar um það birtust í Lögbirtingablaðinu í dag.
Þetta er annars vegar félagið Búsendi ehf., sem áður hét Grillhúsið ehf. og rak samnefnda veitingastaði. Kröfur í það bú námu tæpum 208 milljónum en upp í þær fékkst ekki neitt.
Hitt félagið hét OL Restaurant & Sportbar ehf. og rak staðinn Sport og grill í Smáralind, auk þess sem rekstur veitingastaðarins TGI Fridays var færður inn í félagið eftir að fyrra rekstrarfélag hans varð gjaldþrota. Kröfur í bú OL Restaurant & Sportbar ehf. námu um 167 milljónum – og aftur var ekki krónu í búinu að finna.
Skiptum á fyrra rekstrarfélagi TGI Fridays, Tanknum ehf., lauk í maí í fyrra. Kröfur í það voru tæpar 228 milljónir. Í búinu fundust engar eignir.
Þessi félög tengjast fjórum mönnum, Jóhannesi Birgi Skúlasyni, Helga Magnúsi Hermannssyni, Elís Árnasyni og Þórhalli Arnórssyni.
Fréttastofa RÚV fjallaði um það í fyrra að tugir félagsmanna Eflingar hefðu leitað til stéttarfélagsins vegna launa sem veitingastaðirnir skulduðu þeim. Elís steig stuttu síðar fram og sakaði Jóhannes og Helga um svik.
Tvö félög enn í skiptameðferð
Tvö félög til viðbótar koma við sögu í þessari gjaldþrotahrinu. Annars vegar Adesso ehf., en undir þeim hatti voru rekin kaffihús undir merkjum Café Adesso í Smáralind og á Höfða. Það félag var úrskurðað gjaldþrota 22. janúar á þessu ári, rúmum þremur mánuðum eftir að skattayfirvöld innsigluðu staðina í tvígang, en eigendurnir rufu innsiglið í fyrra skiptið og hófu starfsemina aftur.
Hins vegar er það veisluþjónustufyrirtækið Veislan ehf., sem var úrskurðað gjaldþrota í nóvember í fyrra.
Skiptum á Veislunni og Adesso er ekki lokið eftir því sem fréttastofa kemst næst.