Samþykkja tillögu í tengslum við leigumál listafólks
Spretthópur á að skila tillögum um húsnæði fyrir fyrir 15. nóvember næstkomandi. Ólíkur hópur listafólks og áhugasamtaka eru í vanda eftir að borgin sagði upp leigusamningum í skugga dagsekta vegna brunavarna.
Samþykkt var í menningarráði Reykjavíkurborgar á föstudag að koma á laggirnar svokölluðum spretthóp til þess að koma til móts við þá fimmtán hópa á menningarsviðinu sem fengu uppsögn á leigusamningum við Reykjavíkurborg á dögunum.
Það var menningarþátturinn Lestin sem fjallaði fyrst um málið en Heimildin ræddi í kjölfarið við formann borgarráðs og oddvita Framsóknarflokksins, Einar Þorsteinsson, sem sagði að samningum hefði verið sagt upp í skugga dagsekta slökkviliðsins vegna ónógra brunavarna í húsunum þremur. Hann sagði jafnframt að vinna yrði sett af stað til þess að koma til móts við leigutakana fimmtán en þeir eru allt frá hjólreiðabændum til radíóamatöra og alls kyns listafólks.
Það var borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sem lagði fram tillöguna og var samþykkt að vísa henni til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs í tengslum við kortlagningu og rýni á eignasafni Reykjavíkurborgar. Fulltrúar allra flokka utan Vinstrisins bókuðu svo sameiginlega. Þar …