Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari og einn af helstu forvígismönnum körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti, vandar Bjarna Guðjónssyni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og formanni íþrótta- og útilífsráðs ekki kveðjurnar. Er Brynjar Karl vægast sagt ósáttur við að ráðið, á fundi sínum fyrir helgi, samþykkti að segja upp samningi við Aþenu um rekstur íþróttahússins í Austurbergi. Gagnrýnir hann einnig harðlega að félagið hafi heldur ekki fengið samning um rekstur kennslu- og fundarýmis.
Úthúðar Bjarna Guðjóns eftir að samningi við Aþenu var sagt upp - „Virðist ekki hafa áhuga á að tala við fólk sem nær árangri“