Sjö grunaðir menn og fjórir mexíkóskir hermenn létu lífið í aðgerðunum samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins.
Meza Flores var á lista FBI yfir tíu eftirlýstustu menn Bandaríkjanna. Hann var handtekinn ásamt sjö öðrum í bænum Guasave í Sinaloa-ríki, að sögn mexíkóska varnarmálaráðuneytisins. Bandaríkin vilja fá hann framseldan.
Samkvæmt ráðuneytinu var ráðist í aðgerðirnar eftir að upplýsingar bárust frá bandarísku leyniþjónustunni um hvar Meza Flores héldi sig. Sérsveitarmenn umkringdu staðinn til að koma í veg fyrir að hann slyppi og að liðsauki bærist.
Sjö voru teknir fastir en á meðal þeirra eru næstráðandi Meza Flores, sem jafnframt er frændi hans, og mágur hans, sem sér um fjármál samtakanna. Þeir voru fluttir ásamt Meza Flores til Mexíkóborgar þar sem þeir verða ákærðir. Hinir fimm eru í haldi í Sinaloa.
Lagt var hald á mörg vopn, þar á meðal sprengjuvörpu, auk fíkniefna og reiðufjár.
Meza Flores er 44 ára og stýrir samtökum sem kennd eru við hann og einnig kölluð Guasave-hringurinn. Hann er talinn hafa tekið þátt í fíkniefnaviðskiptum frá tíunda áratugnum en hefur tekist að komast undan yfirvöldum þar til nú með því að halda sig til hlés.
Í Mexíkó var hann eftirlýstur vegna ákæru um skipulagða glæpastarfsemi. Hann var fyrst ákærður í Bandaríkjunum fyrir fíkniefnasmygl árið 2012 og aftur árið 2019. Hann er sagður hafa lagt á ráðin um að framleiða og dreifa miklu magni af kókaíni, heróíni, metamfetamíni og maríjúana á árunum 2005 til 2019.
Þegar hann var settur á lista FBI árið 2025 var hann einnig sakaður um mannrán, fjárkúgun og pyntingar.