Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa föstudaginn 27. mars á þessu ári tekið strætisvagn traustataki í heimildarleysi. Vagninn var við Vífilsstaði í Garðabæ og maðurinn er sakaður um að hafa ekið honum heimildarlaust, án tilskilinna ökuréttinda og óhæfur til að stjórna bílnum vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Ók hann strætisvagninum vestur Reykjanesbraut í Garðabæ, að Austurhrauni, en þar hafði lögregla afskipti af honum.
Ákærður fyrir að stela strætisvagni