Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem átti sér stað í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudags.
Þetta staðfestir lögreglan í svari við fyrirspurn Nútímans.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu leikur grunur á að fleiri en einn hafi ráðist á brotaþola og að barefli hafi verið beitt við árásina.
Heimildir herma að maðurinn hafi margbeinbrotnað
Nútíminn hefur heimildir fyrir því að árásin hafi verið sérlega fólskuleg og að brotaþoli hafi hlotið mjög alvarlega áverka. Samkvæmt heimildum miðilsins margbeinbrotnaði maðurinn og missti tennur í árásinni.
Lögregla hefur ekki staðfest þessar upplýsingar um einstaka áverka en segir að brotaþolinn hafi sjálfur leitað á sjúkrahús þar sem hann fékk aðhlynningu.
Brotaþoli er maður á þrítugsaldri.
Tveir handteknir – fleiri grunaðir
Lögregla hefur framkvæmt húsleitir í tengslum við rannsókn málsins.
Tveir sakborningar hafa þegar verið handteknir og færðir til skýrslutöku. Þeir voru látnir lausir að skýrslutökum loknum.
Málinu er þó hvergi nærri lokið. Að sögn lögreglu eru fleiri grunaðir um aðild að árásinni og er þeirra nú leitað.
Þeir sem grunaðir eru um aðild að árásinni eru á þrítugs- og fimmtugsaldri.
Í svari lögreglunnar við fyrirspurn Nútímans segir:
„Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem átti sér stað aðfaranótt föstudags í Reykjanesbæ. Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir á þessu stigi rannsóknarinnar leikur grunur á að fleiri en einn aðili hafi ráðist á brotaþola og að barefli hafi verið beitt.“
Rannsókn málsins stendur enn yfir og segir lögregla ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Lögreglan á Suðurnesjum hyggst jafnframt birta opinberar upplýsingar um málið síðar í dag.