Bandaríski geð- og taugasjúkdómalæknirinn Karl Deisseroth og þýskir samstarfsmenn hans, Peter Hegemann og Georg Nagel, hlutu í dag Nóbelsverðlaun í læknisfræði fyrir rannsóknir sínar á sviði ljósstýrðrar erfðatækni (e. optogenetics).
Innan þess fræðasviðs er rannsakað hvernig tilteknar frumugerðir stuðla að ákveðinni hegðun eins og ótta, fíkn og hreyfingu. Mögulegt er að talið að rannsóknir á þessu sviði geti einn daginn nýst við þróun meðferða við taugasjúkdómum og skynjunartruflunum, eins og Parkinson og flogaveiki.
Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar segir að með því að nýta tæknina hafi vísindamenn getað varpað ljósi á hvernig ákveðnar taugabrautir stýra ákveðnum minningum, tilfinningum og hegðun sem tengist tauga- eða geðsjúkdómum.
Vísindamennirnir taka við verðlaununum við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi 10. desember. Karl Gústaf konungur Svíþjóðar afhendir verðlaunin.