„Það varð ákveðinn trúnaðarbrestur sem varð til þess að við gátum ekki haldið áfram. Þetta er leiðinleg staða,“ segir Svavar Grétarsson, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ. Flokkurinn sleit meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í gær, fjórum mánuðum eftir myndun hans eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Svavar segist ekki geta tjáð sig umfram það sem fram kom í tilkynningu frá flokknum á Facebook í gær.
Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Garður sameinuðust í eitt sveitarfélag, Suðurnesjabæ, 2018. Meirihlutinn í Suðurnesjabæ klofnaði í atkvæðagreiðslu um staðsetningu gervigrasvallar fyrir tveimur árum. Uppbygging vallarins er enn ekki hafin.
Í stefnumarkandi tillögum sem allir flokkar í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykktu í september var lagt til að gervigrasvöllur yrði staðsettur á aðalvelli Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði og að knattspyrnuaðstaða fyrir börn og ungmenni í Garði yrði bætt.
Aðspurður sagði Svavar að trúnaðarbresturinn tengdist ekki gervigrasvellinum nema með óbeinum hætti.
Svavar segir næstu skref ekki liggja fyrir. Samfylkingin í Suðurnesjabæ ætli að funda með sínu baklandi í kvöld til að stilla saman strengi.