Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en ekki eru veittar nánari upplýsingar um gang mála þar. Atvikið var á borði lögreglumanna lögreglustöðvar eitt sem sér um útköll í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi.
Lögreglan á varðsvæði eitt sinnti einnig tilkynningu um innbrot og þjófnað í heimahúsi en málið er til rannsóknar. Sömuleiðis hefur lögreglan á varðsvæði tvö innbrot til rannsóknar. Lögreglan á lögreglustöð tvö sinnir útköllum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.
Tilkynnt var um ungmenni til vandræða í strætisvagni og fór lögreglan á varðsvæði þrjú, sem sér um Kópavog og Breiðholt, á svæðið. Lögreglan þar sinnti einnig útkalli þar sem kom til ágreinings vegna bílakaupa og lagði leið sína í heimahús til að biðja húsráðanda um að lækka eftir tilkynningu um hávaða.
Loks var tilkynnt um aðila á varðsvæði fjögur, sem nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, sem reyndi að komast inn í bíla. Lögreglan hitti viðkomandi sem sagðist halda að vinur sinn ætti bílinn og var að athuga hvort hann væri opinn.